Litu á hann sem risaeðlu en sjáið hvað er í tísku núna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. október 2025 12:32 Tony Pulis þegar hann var knattspyrnustjóri Sheffield Wednesday fyrir nokkrum árum. Getty/Alex Livesey Tony Pulis, fyrrum knattspyrnustjóri Stoke City og fleiri enskra félaga, elskaði föstu leikatriðin meira en flestir aðrir stjórar á hans tíma. Hann bendir á áberandi þróun „í hans átt“ í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Pulis skrifaði pistil um ensku úrvalsdeildina á vef breska ríkisútvarpsins og í fyrsta pistli sínum vildi Pulis fjalla um uppgang fastra leiktaka, sem er líklega saga tímabilsins hingað til. Fleiri mörk hafa komið á þessu tímabili en síðustu tímabil á undan og topplið deildarinnar skorar meirihluta marka sinna úr uppsettum leikatriðum eins og hornum, aukaspyrnum eða innköstum. Vissi hversu mikilvæg þau voru „Þeir litu á mig sem risaeðlu vegna áherslu minnar á föst leikatriði og langskot með Stoke City þegar við komumst upp í úrvalsdeildina árið 2008. Ég myndi ekki segja að ég finni fyrir réttlætingu með því hvernig þessi föstu leikatriði eru í tísku núna af því að ég vissi þá hversu mikilvæg þau voru,“ skrifaði Pulis. "I was seen as a dinosaur but not many managers moan about set-pieces now". 🙌We've signed up the legend that is Tony Pulis to write a new column.From tactics to man-management, he's going to be tackling a different aspect every week. This week, it's set-pieces. ⚽️ pic.twitter.com/clXHZTrnkU— Match of the Day (@BBCMOTD) October 29, 2025 „Starf mitt var að ná árangri. Já, ég var raunsær, en ég var líka markviss. Ég vann út frá grunnhugmyndum mínum um að vera árangursríkur á þann hátt að það myndi hjálpa félaginu mínu að vinna leiki. Mikilvægustu svæðin á vellinum eru báðir endar vallarins, ekki í miðjunni. Með öllum brögðum verður þú að halda boltanum utan marksins í öðrum endanum og koma honum í netið í hinum,“ skrifaði Pulis. Unnum mjög hart að þeim „Í jöfnum leikjum í úrvalsdeildinni, sérstaklega fyrstu árin sem við vorum þar, þá voru föstu leikatriðin munurinn á því hvort við fengjum stig eða töpuðum þeim. Hvort við héldum okkur uppi eða féllum svo við unnum mjög hart að þeim,“ skrifaði Pulis. „Sömu meginreglur gilda fyrir Arteta og Arsenal núna, og þeir eru efstir í deildinni. Eins og ég hefur hann viðurkennt hversu mikilvægt það er að halda hreinu og hann hefur einnig viðurkennt að margir leikir hans í fyrra enduðu með jafnteflum, svo hann hefur leitað leiða til að breyta þessum jafnteflum í sigra,“ skrifaði Pulis. „Meira en tuttugu prósent allra marka sem skoruð voru í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, sem ekki voru vítaspyrnur, komu úr hornspyrnum eða aukaspyrnu. Arteta hefur líklega skoðað þessa tölfræði og hugsað með sér að ef við getum fengið hluta af því til að bæta við það sem við höfum, þá eigum við góða möguleika á að verða sigurlið,“ skrifaði Pulis. Nýtt vopn í vopnabúrið „Hann stefnir að því að vinna úrvalsdeildina fyrir Arsenal og hann hefur nú bætt við nýju vopni í vopnabúrið. Lið hans er fullt af hæfileikum og getur nú spilað betur en lið í opnum leik, haldið hreinu og auk þess geta þeir skorað reglulega úr föstum leikatriðum líka,“ skrifaði Pulis. „Mér finnst frábært að Arteta hafi tekið föstum leikatriðum fagnandi og, eins og ég, held ég að honum muni ekki vera sama um fólkið sem vill gagnrýna hann fyrir að gera það,“ skrifaði Pulis en það má finna allan pistilinn hér.
Enski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira