Hafa unnið 31 af síðustu 33 leikjum í deild og Meistaradeild Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. október 2025 10:31 Ómar Ingi Magnússon skorar eitt fimm marka sinna gegn Pick Szeged í gær. epa/Robert Hegedus Íslendingalið Magdeburg hefur unnið ellefu af síðustu tólf leikjum sínum í Meistaradeild Evrópu í handbolta.
Magdeburg, sem landsliðsmennirnir Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Elvar Örn Jónsson leika með, gerði góða ferð til Ungverjalands og vann fjögurra marka sigur á Pick Szeged, 30-34, í Meistaradeildinni í gær. Magdeburg hefur unnið alla fimm leiki sína í B-riðli Meistaradeildarinnar á tímabilinu. Liðið vann keppnina á síðasta tímabili og hefur unnið átta leiki í röð í henni. Í síðustu tólf leikjum sínum í keppninni hefur Magdeburg unnið ellefu og gert eitt jafntefli, gegn Veszprém, 26-26, í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum á síðasta tímabili. Síðasta tap Magdeburg í Meistaradeildinni kom gegn Kolstad í Noregi, 31-27, 27. febrúar. Magdeburg hefur unnið Meistaradeild Evrópu tvisvar sinnum á síðustu þremur árum.epa/Christopher Neundorf Síðan þá hefur Magdeburg unnið Pick Szeged (tvisvar sinnum), Barcelona (tvisvar sinnum), Dinamo Búkarest (tvisvar sinnum), Paris Saint-Germain, Veszprém, Füchse Berlin, Wisla Plock og GOG. Magdeburg hefur unnið sex af fyrstu sjö leikjum sínum í þýsku úrvalsdeildinni og gert eitt jafntefli. Liðið vann síðustu fjórtán deildarleiki sína á síðasta tímabili og er því ósigrað í 21 leik í þýsku úrvalsdeildinni í röð. Í síðustu 33 leikjum í þýsku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni hefur Magdeburg því unnið 31 leik og gert tvö jafntefli. Eina tap Magdeburg á tímabilinu kom gegn Veszprém í undanúrslitum HM félagsliða, 23-20, 30. september. Ómar Ingi er markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar með 71 mark. Þá er hann fjórði markahæstur í Meistaradeildinni með 39 mörk. Elvar Örn Jónsson reynir að brjótast í gegnum Pick Szeged. Hann kom til Magdeburg frá Melsungen í sumar.epa/Robert Hegedus Gísli hefur skorað 28 mörk í þýsku deildinni og átján í Meistaradeildinni og Elvar, sem er á sínu fyrsta tímabili hjá Magdeburg, er með átján mörk í þýsku deildinni og fjögur í Meistaradeildinni. Næsti leikur Magdeburg er gegn Blæ Hinrikssyni og félögum í Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Fleiri fréttir Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram Sjá meira