„Ég væri dáinn ef hún væri ekki hér“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 25. september 2025 07:03 Coleen og Wayne Rooney hafa upplifað ýmislegt saman. JMEnternational/Getty Images) Wayne Rooney þakkar konu sinni Coleen fyrir það að vera á lífi í dag. Án hennar hefði hann drukkið sig til dauða.
Manchester United goðsögnin og fyrrum fyrirliði enska landsliðsins í fótbolta sagði frá áfengisvandamálum sínum í hlaðvarpi Rio Ferdinand í gær. „Ég trúi því raunverulega að ég væri dáinn ef hún væri ekki hér“ sagði Rooney og hélt áfram. „Hún heldur mér á beinu brautinni og hefur gert það í einhverja tvo áratugi. Ég vildi alltaf fara út og njóta lífsins með vinum mínum en var kominn á þann stað að geta ekki stoppað... Coleen og Wayne hafa verið saman lengi en þau giftu sig árið 2008.vísir/getty ...Ég glímdi við mikil áfengisvandamál en fannst ég ekki geta leitað til neins, ég vildi ekki vera íþyngjandi. Ég drakk í tvo daga án þess að stoppa, fór svo á æfingu og spilaði um helgina, skoraði tvö mörk og hélt svo áfram að drekka næstu tvo daga á eftir. Hún hjálpaði mér að ná stjórn á þessu og hún hafði stjórn á mér þegar ég þurfti á því að halda.“ Ekki alkóhólisti en drakk í óhófi Rooney hefur áður talað opinskátt um áfengisvandamál sín, sem hann vill ekki lýsa sem alkóhólisma. „Ég var aldrei alkóhólisti en þegar ég gat þá drakk ég í óhófi. Ef ég fékk tveggja daga frí þá drakk ég í tvo daga. Svo lét ég renna af mér, setti í mig augndropa, fékk mér tyggjó eða munnskol og mætti í vinnuna þar sem ég þurfti að hlaupa út um allt og æfa af krafti“ sagði Rooney við breska ríkisútvarpið fyrir þremur árum síðan.
Enski boltinn Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Kane lendir um helgina Körfubolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Sjá meira