Hákon reyndist hetja Brentford Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. september 2025 21:26 Hákon Rafn var hetjan í vítaspyrnukeppninni. Eddie Keogh/Getty Images Hákon Rafn Valdimarsson gerðist sekur um slæm mistök en stóð síðan uppi sem hetja Brentford í sigri gegn Aston Villa í vítaspyrnukeppni enska deildabikarnum.
Hákon hleypti marki Aston Villa auðveldlega inn, fékk skot beint á sig en missti boltann milli fóta. Harvey Elliott skoraði þar með sitt fyrsta mark fyrir Aston Villa og Brentford fór marki undir inn í hálfleikinn en jafnaði snemma í seinni hálfleik, þökk sé Aron Hickey. Hvorugu liði tókst svo að setja sigurmarkið og draga þurfti til vítaspyrnukeppni, þar sem Hákon reyndist hetjan. Hann varði fyrsta vítið frá John McGinn, sem skaut með vinstri fæti í vinstra hornið. Hákon varði svo einnig fjórða víti Villa, frá Matty Cash. Brentford skoraði hins vegar úr öllum sínum vítaspyrnum og fór með 4-2 sigur úr vítaspyrnukeppninni, áfram í næstu umferð deildabikarsins. Crystal Palace komst einnig áfram, eftir 1-1 jafntefli og 4-2 sigur í vítaspyrnukeppni gegn Millwall. Grimsby er sömuleiðis á leið í næstu umferð, eftir 1-0 sigur á útivelli gegn Sheffield Wednesday. Jason Daði Svanþórsson er leikmaður Grimsby en kom ekki við sögu. Þetta er annar leikurinn sem Hákon spilar fyrir Brentford á tímabilinu en hann stóð sig einnig vel í deildabikarleiknum gegn Bournemouth.
Enski boltinn Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Einn sá besti færir sig um set Sport Fleiri fréttir Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjá meira