Má reikna með vatnavöxtum suðaustantil Atli Ísleifsson skrifar 8. september 2025 07:37 Viðbúið er að vatn fari að safnast saman við svona mikla úrkomu. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir austan átta til fimmtán metrum á sekúndu á austanverðu landinu í dag og hvassara um tíma suðaustantil og við austurströndina. Það verður þó mun hægari á vesturhelmingi landsins.
Á vef Veðurstofunnar segir að reikna megi með dálitlum skúrum, en undir kvöld sé útlit fyrir talsverða rigningu á Suðausturlandi og Austfjörðum. Viðbúið er að vatn fari að safnast saman við svona mikla úrkomu á svipuðum slóðum og má því búast við vatnavöxtum um landið suðaustanvert. Hlýnar í veðri, hiti víða tíu til sextán stig. „Á morgun gera spár ráð fyrir mun rólegra veðri og hvergi mikil úrkoma en síðan er að sjá að bæti í rigningu, einkum sunnan- og austantil á miðvikudag,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Sunnan og suðvestan 5-13 m/s með skúrum, en hvassara við norðausturströndina framan af. Hægari suðlæg átt undir kvöld og dregur víða úr vætu. Hiti 9 til 16 stig. Á miðvikudag: Austan 5-13 og dálitlar skúrir í fyrstu, hvassast austantil. Fer síðan að rigna, talsverð úrkoma á Suður - og Austurlandi seinnipartinn. Hiti 8 til 13 stig. Á fimmtudag: Austan og norðaustan 5-13 og víða dálítil rigning með köflum, en talsverð rigning suðaustanlands. Úrkomuminna undir kvöld. Hiti breytist lítið. Á föstudag: Norðaustlæg átt og víða rigning með köflum, en léttir til um landið suðvestanvert. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi. Á laugardag og sunnudag: Útlit fyrir norðaustlæga eða breytilega átt og víða skúrir. Hiti 7 til 13 stig, en heldur svalara á Vestfjörðum.
Veður Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Fleiri fréttir Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Vara við hvössum vindstrengjum Allt að átján stigum og léttskýjað vestanlands Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi Hlýjast sunnan heiða og hiti allt að átján stigum Sjá meira