Fimmtán látnir hið minnsta eftir að kláfur fór út af sporinu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 3. september 2025 20:03 Barn er á meðal hinna látnu. AP/Armando Franca Fimmtán hið minnsta eru látin og átján slösuð eftir að hinn frægi Gloria-kláfur í Lissabon í Portúgal fór út af sporinu og skall á byggingu. Fimm hinna slösuðu eru sögð alvarlega slösuð og hin þrettán, þeirra á meðal barn, eru sögð hafa hlotið minniháttar áverka.
Portúgalski miðillinn Observador greinir frá því að ein línanna hafi losnað sem varð til þess að annar tveggja vagna þaut niður brekku, fór út af sporinu og skall utan í byggingu. Gloria-kláfurinn er eitt kennileita Lissabonborgar og tengir saman gömlu miðborgina og Bairro Alto-hverfið. Hverfið síðarnefnda er uppi á holtinu sem gnæfir yfir gömlu borginni og hefur kláfurinn stytt borgarbúum leiðina hverfanna á milli frá árinu 1885. Kláfurinn er einnig gríðarlega vinsæll meðal ferðamanna. Enn er óljóst hvað nákvæmlega olli slysinu og ýmislegt enn á huldu um aðstæður á vettvangi. Marcelo Rebelo de Sousa, forseti Portúgals, vottaði aðstandendum hinna látnu samúð sína og kallaði eftir því að upplýst yrði um orsökin sem allra fyrst í ávarpi til þjóðarinnar. Breska ríkisútvarpið greinir frá því að á meðal hinna látnu séu portúgalskir og erlendir ríkisborgarar.
Portúgal Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Fleiri fréttir Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Sjá meira