Ómar með átta úr átta og Donni allt í öllu í sigri Sindri Sverrisson skrifar 3. september 2025 19:57 Ómar Ingi Magnússon og Óðinn Þór Ríkharðsson áttu báðir frábæran leik í kvöld, í sitt hvoru landinu. vísir/Anton Ómar Ingi Magnússon skoraði úr öllum átta skotum sínum fyrir Magdeburg í kvöld, í 34-28 sigri á Eisenach. Íslenska tríóið skoraði samtals fimmtán mörk í leiknum fyrir Magdeburg. Íslendingar voru einnig að spila í Danmörku og Portúgal.
Ómar skoraði eins og fyrr segir átta mörk, þar af fimm af vítalínunni, og klikkaði ekki á skoti. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði svo fimm mörk og Elvar Örn Jónsson tvö. Ómar og Gísli áttu svo þrjár stoðsendingar hvor. Einar Þorsteinn Ólafsson var svo í liði Hamburg sem tapaði hins vegar á heimavelli, 33-29 gegn Hannover-Burgdorf. Fyrr í kvöld voru fleiri Íslendingar á ferðinni í Þýskalandi eins og lesa má um hér: Í Danmörku skoraði Kristján Örn Kristjánsson, eða Donni, sjö mörk úr níu skotum, þar af ekkert af vítalínunni, þegar Skanderborg AGF vann tíu marka sigur gegn Grindsted, 33-23. Donni átti jafnframt fjórar stoðsendingar eða flestar allra í leiknum. Elvar Ásgeirsson varð hins vegar að sætta sig við naumt tap með Ribe-Esbjerg gegn Mors-Thy á útivelli, 30-29, þar sem sigurmarkið kom á lokasekúndunni eftir að Elvar hafði lagt upp jöfnunarmark gestanna. Hann skoraði tvö mörk í leiknum og átti þrjár stoðsendingar. Í Portúgal fögnuðu Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting öruggum sigri gegn Marítimo á útivelli, 36-29. Ekki liggur fyrir skýrsla úr þeim leik þegar þetta er skrifað.
Danski handboltinn Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira