Þungbúið norðantil en bjart og hlýtt sunnan heiða Atli Ísleifsson skrifar 13. ágúst 2025 07:06 Óvenju hlýtt loft berst til okkar um helgina með strekkings suðvestanátt. Vísir/Anton Veðurstofan gerir ráð fyrir rólegu veðri í dag þar sem verður þungbúið og sums staðar lítilsháttar væta fyrir norðan og fremur svalt, en sunnan heiða bjart og hlýtt.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði norðlæg átt, þrír til átta metrar á sekúndu, en aðeins hvassara austast fram yfir hádegi. Hiti verður sjö til sautján stig og hlýjast sunnanlands, en svalast fyrir norðan. „Vestan gola eða kaldi á morgun með skúrum aðallega norðantil á landinu, en syðra að mestu þurrt. Milt veður. Óvenju hlýtt loft á svo að berast til okkar um helgina með strekkings suðvestanátt. Það verður þungbúið og fremur blautt vestanlands og því nær hitinn engum hæðum þar, en austanlands verður bjartara veður og hlýtt,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Vestlæg átt 5-10 m/s og skúrir, einkum norðantil, en bjart á Suðausturlandi. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á föstudag og laugardag: Suðvestan 8-15, hvassast norðvestantil. Rigning, en lengst af þurrt austanlands og jafnvel bjart á laugardag. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast austanlands og hlýnar enn frekar þar á laugardag. Á sunnudag: Svipað veður, en dregur heldur úr vindi. Áfram hlýtt og bjart fyrir austan. Á mánudag: Hæg vestlæg átt. Bjart með köflum suðaustanlands, annars skýjað að mestu en úrkomulítið. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast suðaustanlands. Á þriðjudag: Hæga norðlæg eða breytileg átt, skýjað, úrkomulítið og svalt fyrir norðan, en bjartara og mildara syðra.
Veður Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Umhleypingar næstu daga Veður Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Erlent Fleiri fréttir Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Gætu orðið hressilegar dembur inn til landsins Skýjað að mestu og hæg norðlæg eða breytileg átt Rigning og skúrir víða um land Bætir í úrkomu eftir hádegi Spáð hlýju veðri norðaustantil Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Sjá meira