Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. ágúst 2025 14:32 Ronnie Stam (til vinstri) leiddist út heim glæpa eftir að leikmannaferlinum lauk. EPA/LINDSEY Ronnie Stam, fyrrum fótboltamaður sem varð hollenskur meistari með Twente og spilaði með Wigan í ensku úrvalsdeildinni, hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir eiturlyfjasmygl. Hann er sagður hafa verið mjög umsvifamikill í hollensku undirheimunum eftir að fótboltaferlinum lauk.
Hollenski saksóknarinn lýsti honum sem stórfelldum glæpamanni og fór fram á þrettán ára fangelsi, en hann var sýknaður af tveimur ákærum og dæmdur í sjö ára fangelsi. Stam var sakfelldur fyrir að smygla rúmlega sjö hundruð kílóum af kókaíni, MDMA og hláturgasi til Hollands frá Suður-Ameríku, auk þess að hafa tekið þátt í peningaþvætti. Hann viðurkenndi sjálfur fyrir dómara að hann hefði tekið þátt í að smygla um tuttugu kílóum af kókaíni, og fengið greitt fyrir það andvirði eins kílós, en bar af sér aðrar sakir og sagðist sjá eftir því að hafa tekið þátt í smyglinu. Stam var hluti af liði Twente sem varð hollenskur meistari undir stjórn Steve McLaren árið 2010. Þaðan lá leiðin til Wigan, sem átti bestu ár í sögu félagsins á þeim tíma. Wigan varð enskur bikarmeistari árið 2013 eftir sigur í úrslitaleik gegn Manchester City, sem Stam missti af eftir að hafa fótbrotnað í undanúrslitunum. Síðan fór Stam til Standard Liege í Belgíu áður en hann endaði ferilinn með uppeldisfélaginu NAC Breda í Hollandi. Eftir að ferlinum lauk leiddist hann út í heim glæpa.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Sjá meira