Meiðsli Rodri verri en menn héldu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. ágúst 2025 11:00 Pep' Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, ræðir við Rodri á æfingu Manchester City. Getty/James Gill Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, færði stuðningsmönnum sínum slæmar fréttir á blaðamannafundi í gær.
City verður mögulega án mikilvægasta leikmanns síns í fyrstu leikjum tímabilsins. Spænski miðjumaðurinn Rodri sleit krossband í byrjun síðasta tímabils og missti af nær öllu tímabilinu. Hann var kominn til baka en meiddist þá aftur. Guardiola sagði að Rodri hafi orðið fyrir slæmum meiðslum í tapleiknum á móti Al Hilal í sextán liða úrslitum heimsmeistarakeppni félagsliða. „Rodri er að verða betri en hann varð fyrir alvarlegum meiðslum í leiknum á móti Al Hilal,“ sagði Guardiola en Rodri tognaði á nára í leiknum. „Hann hefur náð að æfa betur síðustu daga og vonandi verður hann kominn í gott form eftir landsleikjahléið í september,“ sagði Guardiola. „Vonandi getur hann spilað einhverjar mínútur í þessum fyrstu leikjum i byrjun móts en það er mikilvægt að hann sé verkjalaus. Við viljum ekki að Rodri meiðist aftur,“ sagði Guardiola. „Við gerum því allt til að forðast það. Hann er ekki tilbúinn í níutíu mínútur í fyrstu leikjunum,“ sagði Guardiola. Manchester City mætir Wolves, Tottenham og Brighton í fyrstu þremur leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. View this post on Instagram A post shared by Fabrizio Romano (@fabriziorom)
Enski boltinn Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira