Menning

Galdra­karlinn í Oz aftur á fjalirnar

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Sýningin um Galdrakarlinn í Oz verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu á næsta leikári. 
Sýningin um Galdrakarlinn í Oz verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu á næsta leikári.  Vísir/Anton Brink

Á næsta leikári mun Borgarleikhúsið setja upp fjölskyldusöngleik eftir hinu sígilda ævintýri um Galdrakarlinn í Oz.

„Í áratugi hafa ungir sem aldnir heillast af sögunni um stúlkuna Dóróteu sem ásamt hundinum Tótó lendir óvænt í ævintýralandinu Oz þar sem fuglahræður tala, apar fljúga og galdranornir ráða ríkjum. Til að komast aftur heim þarf Dórótea að fylgja gula veginum sem liggur til galdrakarlsins fræga í Oz en hann er sá eini sem getur hjálpað henni,“ segir í fréttatilkynningu frá Borgarleikhúsinu. 

Leikstjóri sýningarinnar er Þórunn Arna Kristjánsdóttir sem íslenskum leikhúsgestum á öllum aldri að góðu kunn en hún leikstýrði barnasýningunum Fíasól Gefst aldrei upp og Emil í Kattholti. 

„Hér fer hún fyrir glæsilegum hópi leikara og listrænna stjórnenda sem í sameiningu skapa bæði ógnir og undur ævintýralandsins Oz í ógleymanlegri sýningu.“

Enn er á huldu hverjir koma til með að túlka Dórótheu, ljónið, tinkarlinn, fuglahræðuna og fleiri persónur ævintýrisins sígilda. 

Ekki er um að ræða fyrsta skiptið sem söngleikurinn er settur upp í leikhúsinu en Galdrakarlinn í Oz var sýndur árið 2011. Myndbrot frá þeirri uppsetningu má sjá hér að neðan. 

„Ásamt glæsilegum hópi leikara mun stór barnahópur vera með í sýningunni og auglýsir Borgarleikhúsið eftir kraftmiklum og skapandi krökkum á aldrinum 8-12 ára til að taka þátt,“ segir í tilkynningunni. Dans- og söngprufur verða haldnar í ágúst en frekari upplýsingar um þær má nálgast á vef Borgarleikhússins






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.