Formúla 1

Brott­reksturinn kom Horn­er í opna skjöldu

Siggeir Ævarsson skrifar
Christian Horner og leikkonan Drew Barrymore á síðasta ári.
Christian Horner og leikkonan Drew Barrymore á síðasta ári. EPA-EFE/SHAWN THEW

Christian Horner, sem var rekinn úr starfi sem liðsstjóri Red Bull í Formúlu 1, sagði þegar hann ávarpaði samstarfsfólk sitt að brottreksturinn hefði komið honum algjörlega í opna skjöldu.

Margir reiknuðu með því að Horner yrði sagt upp störfum snemma árs 2024 eftir að óviðeigandi skilaboð hans til kvenkyns starfsmanns liðsins fóru í dreifingu en eftir rannsókn á málinu innanhúss hjá Red Bull ákvað liðið að aðhafast ekki frekar.

Horner ávarpaði samstarfsfólk sitt hjá Red Bull í morgun eftir tíðindin þar sem hann brast í grát og í lok ávarpsins var klappað vel og lengi fyrir honum.

„Þetta kom mér í opna skjöldu. Ég er búinn að fara yfir málin síðustu tólf tíma og ég vildi fá að standa fyrir framan ykkur og segja ykkur þetta sjálfur. Sömuleiðis vildi ég þakka fyrir mig og þakka hverjum einasta meðlimi í þessu liði sem hefur gefið svo ótrúlega mikið af sér síðustu 20 ár.“

Horner birti svo í kvöld færslu á Instagram þar sem hann þakkar kærlega fyrir sig:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×