Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Atli Ísleifsson skrifar 20. júní 2025 07:09 Á morgun er gert ráð fyrir austlægri átt. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir fremur hæga breytilega átt í dag þar sem verður skýjað með köflum, lítilsháttar skúrir á víð og dreif og milt veður. Það verður heldur léttara yfir á suðaustanverðu landinu þar sem hiti getur náð að 17 stigum í dag þegar best lætur.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að í kvöld gangi svo í suðaustan kalda vestast á landinu með dálítilli rigningu. „Á morgun er gert ráð fyrir austlægri átt, víða 5-10 m/s en allhvasst syðst á landinu. Framan af degi bjart með köflum og úrkomulítið, en fer að rigna af og til á suðurhelmingi landsins síðdegis. Fyrir norðan þykknar upp með smá vætu þar um kvöldið. Hiti svipaður, en hlýjast á morgun verður um landið norðan- og vestanvert,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag (sumarsólstöður): Austlæg átt 5-13 m/s, en 13-18 syðst. Víða bjartviðri framan af degi, en rigning með köflum sunnantil síðdegis og þykknar upp fyrir norðan. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast um landið norðan- og vestanvert. Á sunnudag: Norðaustan 5-13, hvassast við norðurströndina, en hægari sunnantil. Dálítil rigning eða súld, en úrkomulítið suðvestanlands. Hiti frá 7 stigum við norðausturströndina, upp í 17 stig á Suðvesturlandi. Á mánudag: Norðaustan 5-13 á norðanverðu landinu með rigningu eða súld, en hægari vindur sunnan heiða með dálitlum skúrum. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast sunnanlands. Á þriðjudag og miðvikudag: Austlæg eða breytileg átt. Skýjað að mestu og væta af og til í flestum landshlutum. Hiti 7 til 15 stig, svalast við austurströndina. Á fimmtudag: Útlit fyrir austan- og norðaustanátt með rigningu. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Enn besta lausnin að kaupa Grænland Erlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Mætti ekki í útför föður síns Erlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Fannst látinn í tjaldi Innlent Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Fleiri fréttir Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Sólin sleikir landsmenn Áfram bongó í kortunum og nú um allt land „Gegnumgangandi bongó um helgina“ Hitinn náði yfir tuttugu stig Möguleiki á að hiti fari yfir tuttugu stig í höfuðborginni Möguleiki á tuttugu stiga hita Útlit fyrir besta dag sumarsins á föstudaginn Skúrir víða um land og lægð nálgast austurströnd „Mjög venjulegt sumarveður“ Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent