Yfir 20.000 viðskiptavinir og tíföldun gengis á fimm árum Myntkaup 5. júní 2025 12:00 Fimm ár frá stofnun: Áhugi Íslendinga á rafmyntum hefur stóraukist síðastliðin ár Það er ekki langt síðan hugmyndin um að fjárfesta í rafmyntum þótti nýstárleg og jafnvel einungis talin fyrir brautryðjendur í tækni eða áhættusækna spákaupmenn. En þróunin síðastliðin ár hefur gjörbreytt landslaginu með innkomu stofnanafjárfesta, kauphallarsjóða, skýrara regluverki og viðurkenningu stórvelda eins og Bandaríkjanna.
Nú tala stærstu eignastýringafyrirtæki heims mörg hver fyrir því að viðskiptavinir þeirra bæti Bitcoin við í eignasafn sitt og er spurningin að margra mati ekki lengur hvort það skuli gert heldur hversu stóran hluta eignasafnsins skuli ráðstafa. Að sama skapi er regluverkið að skýrast sem styrkir forsendur fyrir áframhaldandi vexti og samþættingu við hinn hefðbundna fjármálageira. Útlit er fyrir að rafmyntir hafi fest sig í sessi og að þær muni koma til með að spila vaxandi hlutverk í viðskiptum um ókomna tíð. Yfir tíföldun á gengi Bitcoin frá stofnun Myntkaup, stærsti rafmyntaskiptimarkaður landsins, hefur verið brautryðjandi í að auðvelda Íslendingum að fjárfesta í Bitcoin en félagið fagnaði nýverið fimm ára afmæli sínu. Mikil umbylting hefur orðið í geiranum frá stofnun félagsins en helsta merki þess er gengi Bitcoin sem hefur frá þeim tíma hækkað úr um 8.600 dollurum í yfir 105.000 dollara eða úr um einni milljón króna í rúmlega þrettán milljónir króna þegar þessi orð eru rituð. Við ræddum við Patrek Maron Magnússon, stofnanda og framkvæmdastjóra Myntkaupa, sem segir áhugann á Bitcoin aukast jafnt og þétt. „Þegar við settum Myntkaup á laggirnar þann 11. maí 2020 var gengi Bitcoin rétt um 9 þúsund dollarar. Gengið hefur meira en tífaldast síðan þá og fólk er í auknum mæli byrjað að líta á fjárfestingu í rafmyntum sem leið til að verja sitt fjármagn gegn verðbólgu og peningaprentun sem og góða leið til ávaxta fjármagn til lengri tíma,“ segir hann. 27 milljarðar í viðskiptum — og yfir 20.000 viðskiptavinir Frá stofnun hafa viðskiptavinir Myntkaupa nú þegar verslað með rafmyntir fyrir rúmlega 27 milljarða króna en stjórnendur félagsins gera ráð fyrir örum vexti í veltu á komandi árum. Stærð viðskipta eru af öllu tagi og geta numið frá tugum þúsunda upp í marga tugi milljóna í senn. „Það sem hefur komið okkur hvað mest á óvart er hversu víða áhuginn liggur. Það eru ekki bara ungir einstaklingar eða áhugamenn um tækni sem koma til okkar í viðskipti — heldur fólk á öllum aldri og fyrirtæki allstaðar að sem eru að leita nýrra fjárfestingakosta eða jafnvel til að geyma hluta af sparnaði sínum utan hins hefðbundna bankakerfis,“ segir Patrekur. Fjöldi viðskiptavina Myntkaupa hefur farið ört vaxandi og í dag telja þeir yfir 20.000 talsins, sem þýðir að rúmlega 5% þjóðarinnar eru skráð hjá félaginu. Bitcoin sem eignaflokkur Síðastliðin fimm ár hefur Bitcoin skarað fram úr öðrum eignaflokkum þegar litið er til ávöxtunar, en meðalávöxtun síðustu fimm árin hefur verið u.þ.b. 60% á ári. Í huga stærri fjárfesta á alþjóðavísu er Bitcoin nú í auknum mæli talið sem verðmætaforði (e. store of value) en Bitcoin er gjarnan líkt við stafrænt gull. „Okkar markmið hefur alltaf verið að stuðla að því að Íslendingar verði ekki eftirbátar annarra þjóða í því að tileinka sér Bitcoin og aðrar rafmyntir. Við reynum eftir bestu getu að gera ferlið að fjárfesta í rafmyntum eins auðvelt og hægt er ásamt því að leggja mikla áherslu á öryggi okkar viðskiptavina,“ segir Patrekur. Heildarmarkaðsvirði Bitcoin nemur á núverandi gengi yfir 2.000 milljörðum bandaríkjadollara. Til samanburðar þá nam verg landsframleiðsla Íslands um 31 milljarði bandaríkjadollara árið 2023 en dagleg velta með Bitcoin er um helmingi meiri en það að jafnaði. Bitcoin á þó enn langt í land með að ná gulli sem er um 23.000 milljarðar bandaríkjadollara að markaðsvirði. Ýmsir þekktir greinendur og fjárfestar gera í dag ráð fyrir að Bitcoin geti tekið fram úr gulli á næsta áratug en til þess að það gangi eftir þyrfti Bitcoin að meira en tífaldast miðað við núverandi gengi. Slíkar spár eru þó ávalt háðar ýmsum forsendum og óvissuþáttum en aðstandendur Myntkaupa segjast ekki hafa neina kristalskúlu í þeim efnum frekar en aðrir og taka eigi öllu slíku með fyrirvara. Sjálfir eru þeir þó bjartsýnir á framhaldið en ljóst er að spennandi verður að fylgjast með framvindunni á komandi árum. Hvert stefnir Myntkaup næstu fimm árin? Aðspurður um framtíðina segir framkvæmdastjórinn að næstu skref felist í að bæta vöruúrvalið og útvíkka þjónustuna sem stendur viðskiptavinum til boða og þannig halda áfram að ryðja brautina fyrir Bitcoin og öðrum rafmyntum á Íslandi. „Rafmyntir eru komnar til að vera rétt eins og internetið. Það er útlit fyrir að þær verði sífellt stærri hluti af fjármálakerfinu, bæði á beinan hátt sem fjárfestingarkostur og óbeinan hátt sem ný grunnkerfi fyrir hefðbundna fjármálaþjónustu. Ísland á fullt erindi þar í fremstu röð ef við höldum rétt á spöðunum og tileinkum okkur hlutina á faglegan hátt. Við viljum leggja okkar að mörkum til að stuðla að því og stefnum á að halda áfram að vaxa og dafna með okkar viðskiptavinum“ bætir hann við að lokum. Áhugasamir geta skráð sig á Myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið á App Store eða Play Store.
Rafmyntir Mest lesið Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf Tókst ekki að sýna fram á galla og situr uppi með körfuboltaskóna Neytendur Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Viðskipti innlent Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Miðeind festir kaup á Snöru Viðskipti innlent Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Viðskipti innlent Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Topp fimm tólin í verkfærakistuna Samstarf Fleiri fréttir Topp fimm tólin í verkfærakistuna Yfir 20.000 viðskiptavinir og tíföldun gengis á fimm árum Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Sjá meira