Ráðherrar fráfarandi ríkisstjórnar hafa stofnað fyrirtæki, fengið mynd af sér með Boris Johnson og einn gengur nú Jakobsveginn. Aðrir hyggja á háskólanám, dúndra út Facebook-færslum eða lyfta níðþungum lóðum. Einn er orðinn forseti, þó ekki forseti Íslands. Já, það er líf eftir ráðherratíð. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks, og Vinstri grænna hélt um stjórnartaumana á miklum umbrotatímum frá árslokum 2017 til haustsins 2024. Á meðal viðfangsefna sem hún þurfti að takast á við voru eldar á Reykjanesi sem ógnuðu meðal annars byggð í Grindavík, og heimsfaraldur kórónuveirunnar sem umturnaði samfélaginu. Flokkarnir þrír náðu saman eftir nokkuð langar stjórnarmyndunarviðræður í nóvember 2017 og endurnýjuðu umboð sitt í kosningunum 2021. Katrín Jakobsdóttir leiddi ríkisstjórnina þar til hún skellti sér í forsetaframboð árið 2024 og hélt Bjarni Benediktsson um stjórnartauminn þar til ríkisstjórnin sprakk í október í fyrra. Í stjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks, og Vinstri grænna sátu alls sextán ráðherrar. Einhverjir þeirra voru frá upphafi til enda, aðrir stærstan hluta stjórnartíðarinnar og sumir nokkuð skemur. En hvar eru þessir fyrrverandi ráðherrar nú? Sumir eru enn á þingi á meðan aðrir hafa sagt skilið við stjórnmálin og snúið sér að öðru. Svo er framtíð sumra enn óljós. Hér að neðan er fjallað um hvar þetta fólk er nú, um hálfu ári eftir þingkosningarnar þann 30. nóvember síðastliðinn. Ríkisstjórnin mætti nokkrum sinnum á Bessastaði Áslaug í Columbia Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tók við embætti dómsmálaráðherra á miðju kjörtímabili árið 2019. Eftir kosningarnar 2021 tók hún við vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu, sem varð síðar háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið. Hún náði kjöri í kosningum í lok nóvember og er þriðji þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður. Í lok janúar, í aðdraganda landsfundar Sjálfstæðisflokksins, greindi Áslaug frá því að hún myndi sækjast eftir formennsku flokksins eftir að Bjarni Benediktsson hafði tilkynnt að hann myndi ekki halda áfram sem formaður. Í formansslagnum mætti hún Guðrúnu Hafsteinsdóttir, á sögulegum landsfundi. Áslaug laut í lægra haldi, en með ansi litlum mun. Einungis munaði nítján atkvæðum á þeim. Áslaug fékk 912 atkvæði, en Guðrún 931. Er sárara að tapa með svona litlum mun? „Já ég held það. Maður hugsar um allskonar hluti og fólk sem komst ekki, eða mætti of seint,“ sagði Áslaug í viðtali við Reykjavík síðdegis í kjölfar Landsfundarins. Það var svo í byrjun þessa mánaðar sem Áslaug greindi frá því að hún myndi taka sér níu mánaða leyfi frá þingstörfum. Ástæðan er sú að Áslaug ætlar að flytja til New York þar sem hún ætlar að stunda nám í hinum virta Columbia-háskóla. Um er að ræða svokallað MPA-nám, meistaranám í opinberri stjórnsýslu og stjórnun. Námið hefst síðsumars og mun klárast í maí á næsta ári. Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður mun taka sæti Áslaugar Örnu á þingi. „Ég hlakka mikið til og held að þess reynsla mín, að fara núna út í þennan tíma, geti bara hjálpað mér að koma sterkari til baka, sama hvað verður svo,“ sagði Áslaug í Bakaríinu á Bylgjunni á dögunum. Ásmundur Einar - Gengur með hundana og duglegur í ræktinni Ásmundur Einar Daðason var félags- og jafnréttismálaráðherra í upphafi fyrra kjörtímabi, félags- og barnamálaráðherra 2019–2021, mennta- og barnamálaráðherra 2021–2024. Hann komst ekki á þing fyrir Framsóknarflokkinn í kosningunum í vetur. Síðan hefur hann sýnt aðeins frá daglegu lífi sínu á samfélagsmiðlum. Þar má sjá hann stunda líkamsrækt, fara í göngutúra með hundunum og styðja við Aftureldingu í handboltanum. Ásmundur í góðra hunda hópi Í mars birti hann einnig mynd af sér og arftaka sínum, Ásthildi Lóu Þórsdóttur. Þá höfðu þau tvö átt fund. Hann sagði að sér fyndist Ásthildur Lóa fara vel af stað, og minntist sérstaklega á að samningur um að ríkið myndi taka yfir þjónustu fyrir börn með fjölþættan vanda. „Ríkisstjórnin á hrós skilið fyrir þennan áfanga og mér finnst við eiga að viðurkenna og segja það þegar vel er gert. Þau er að fara vel af stað í þessum málum. Til hamingju og áfram gakk!“ skrifaði Ásmundur. Þess má geta að sama dag og Ásmundur birti þessa færslu sagði Ásthildur Lóa af sér sem ráðherra. Guðmundur Ingi Kristinsson tók við af henni. Bjarni - Fylgdist með Stjörnunni sigra Skagfirðinga Í þessu ríkisstjórnarsamstarfi gegndi Bjarni Benediktsson lengst af embætti fjármála- og efnahagsráðherra, eða frá upphafi samtarfsins 2017 til ársins 2023. Þá sagði hann af sér vegna álits umboðsmanns Alþingis um að hann hefði verið vanhæfur til að sjá um söluna á Íslandsbanka. Hann fór þó ekki langt heldur tók við embætti utanríkisráðherra, og gengdi því þangað til Katrín fór í forsetaframboð í fyrra, en þá tók hann við af henni sem forsætisráðherra. Jafnframt gegndi hann embættum félags- og vinnumarkaðsráðherra og matvælaráðherra í lok síðasta árs þegar Vinstri græn hættu í samstarfinu. Bjarni var kjörinn á þing, sem fyrsti þingmaður Suðvesturkjördæmis, í nóvember. Í byrjun árs tilkynnti Bjarni að hann ætlaði að stíga af hinu pólitíska sviði. Hann myndi ekki að sækjast eftir áframhaldandi formennsku í Sjálfstæðisflokknum. Jafnframt hygðist hann segja af sér þingmennsku. Hann sagði af sér þingmennsku á nýju þingi í byrjun febrúar, og Guðrún Hafsteinsdóttir tók við af honum sem formaður Sjálfstæðisflokksins í byrjun mars. Þar með lauk 22 ára löngum stjórnmálaferli Bjarna. „Það eru gríðarleg kaflaskil í lífinu að stíga af pólitíska sviðinu. Ég er bara glaður að sjá þennan kraft sem er í flokknum og er ánægður með þessa ákvörðun fyrir mig, og ekki síður fyrir flokkinn,“ sagði Bjarni í viðtali við Stöð 2 á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Hvað er fram undan hjá Bjarna Benediktssyni? „Það var mjög meðvituð ákvörðun um að taka frí og aðeins að anda inn í lífið og eyða góðum tíma með fjölskyldunni. Ég ætla finna úr því smám saman. Það kemur til mín einn góðan veðurdag hvað tekur við. Það liggur ekki fyrir á þessari stundu.“ Á síðustu dögum hefur sést til Bjarna á leikjum Stjörnunnar og Tindastóls í úrslitaeinvígi Bónus-deildar karla í körfubolta. Bjarni, sem er búsettur í Garðabæ, er stuðningsmaður Stjörnunnar, en hann spilaði fótbolta með liðinu á sínum yngri árum. Á dögunum varð hans lið Íslandsmeistari. Hér má bæði sjá Áslaugu Örnu og Bjarna Benediktsson á fjórða leik Stjörnunnar og Tindastóls.Vísir/Hulda Margrét Bjarkey Olsen - Sýnir frá pílagrímsferðinni á YouTube Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir kom inn í ríkisstjórnina sem matvælaráðherra í hrókeringunum eftir að Katrín sagði af sér. Engin ráðherra sat eins skammt og Bjarkey í umræddri ríkisstjórn. Hún gaf ekki kost á sér í síðastliðnum þingkosningum. Í apríl var greint frá því að Bjarkey væri komin í nýtt starf. Hún var ráðin sem forstöðumaður velferðarsviðs hjá Fjallabyggð, en Bjarkey hefur bæði búið á Ólafsfirði og Siglufirði. Og nú er Bjarkey í pílagrímsferð, en hún gengur um þessar mundir Jakobsveginn. Hún hefur sýnt frá ferðalagi sínu á samfélagsmiðlum, meðal annars á YouTube þar sem hún hefur frá lok aprílmánaðar birt myndbönd daglega þar sem hún greinir frá ferðum sínum. Guðlaugur Þór - Fór á Anfield og hitti Boris Guðlaugur Þór Þórðarson var utanríkisráðherra á fyrra kjörtímabili ríkisstjórnarinnar og á seinna kjörtímabilinu var hann umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Hann endurnýjaði umboð sitt á Alþingi í kosningunum í nóvember og er annar þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður. Í aðdraganda landsfundar Sjálfstæðisflokksins var hann nokkuð orðaður við formannsframboð. Hann laut í lægra haldi gegn Bjarna Benediktssyni í formannsslag flokksins árið 2022, og þar sem Bjarni var að yfirgefa sviðið töldu einhverjir blasa við að Guðlaugur myndi reyna að grípa gæsina. Hann tilkynnti þó í febrúar að hann myndi ekki fara fram. Hann sagði núning milli fylkinga í flokknum hafa verið í gangi í nokkurn tíma, og lagði til að þeir sem hefðu tekið þátt í honum myndu halda sig til hlés. Þar vísaði hann líklega bæði til baráttu sinnar við Bjarna í formannsslagnum 2022 og prófkjörsbaráttu sem hann háði gegn Áslaugu Örnu í Reykjavík árið 2021. Hann lagði til að næsti formaður yrði utan þessara fylkinga. Líkt og komið hefur fram var Guðrún Hafsteinsdóttir kjörin formaður. Í aðdraganda og kjölfar landsfundarins var talað um að teymi sem hefur unnið í kringum Guðlaug hefði fylkt sér á bak við Guðrúnu, meðan þeir sem höfðu verið Bjarna-megin studdu almennt Áslaugu. Svo hefur Guðlaugur verið nokkuð áberandi stjórnarandstöðuþingmaður, og meðal annars lagt orð í belg varðandi styrkjamálið svokallaða, skipulagsbreytingar í Grafarvogi og varnarmál. Þá hefur hann sýnt frá nokkrum ævintýrum á samfélagsmiðlum. Hann fór ásamt Ágústu Johnson, eiginkonu sinni, á Anfield og sá sína menn í Liverpool vinna dramatískan sigur á West Ham í ensku úrvalsdeildinni. Á dögunum birti hann svo mynd af sér og Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, en þeir höfðu báðir verið á fundi IDU (International Democrat Union), sem eru samtök hægri- og miðjuflokka. „Þrátt fyrir alvarlegan undirtón var gaman að hitta gamla vini og félaga,“ skrifaði Guðlaugur við færsluna. Guðlaugur ásamt Boris Johnson og svo með Ágústu Johnson, eiginkonu sinni. Guðmundur Ingi – Deilir við nýjan ráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson var umhverfis- og auðlindaráðherra utan þings á fyrra kjörtímabilinu. Svo fór hann inn á þing, og varð félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra á seinna kjörtímabilinu. Hann náði ekki kjöri í kosningunum í vetur, eins og hinir úr Vinstri grænum. Hann er enn varaformaður flokksins, en margir hafa velt fyrir sér framtíð Vinstri grænna eftir að hann féll af þingi í nóvember. Nokkuð lítið hefur farið fyrir Guðmundi eftir kosningarnar. Hann gagnrýndi þó Jóhann Pál Jóhannsson, sem tók í desember síðastliðnum við embættinu sem Guðmundur gegndi milli 2017 og 2021. Þá hafði ráðuneyti Jóhanns greint frá því að hann hefði ákveðið að falla frá ráðstöfun 600 milljón króna af fjárheimildum þessa árs. „Nei, hættu nú alveg Jóhann Páll!“ var titill aðsendar greinar Guðmundar sem birtist á Vísi um ákvörðun Jóhanns Páls, sem hann sagði hafa komið sér á óvart og ollið sér vonbrigðum. „Það er því erfitt að sjá hvað umhverfisráðherra Samfylkingarinnar gengur til með blóðugum niðurskurði í umhverfismálum. Á að skera niður opinber störf? Á að hætta með mikilvæg verkefni? Hvert er planið? Ráðherrann verður að útskýra hvernig hann telji sig geta tekið 600 m.kr. úr brýnum verkefnum innan málaflokka ráðuneytisins án þess að það komi niður á opinberri þjónustu eða árangri í umhverfismálum,“ sagði Guðmundur Ingi. Á dögunum sýndi Guðmundur Ingi frá því á samfélagsmiðlum þegar hann fór í sauðburð hjá bróður sínum. „Ungviðið er alltaf svo fallegt. Gott að rifja upp fæðingaraðstoð,“ skrifaði hann við færslu á Instagram. Guðrún – Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins Guðrún Hafsteinsdóttir tók við af Jóni Gunnarssyni sem dómsmálaráðherra á miðju seinna kjörtímabilinu. Hún endurnýjaði umboð sitt á þingi í nóvember og er annar þingmaður Suðurkjördæmis. Líkt og áður segir sóttist Guðrún eftir formannsstólnum í Sjálfstæðisflokknum eftir að Bjarni tilkynnti um að hann myndi ekki sækjast eftir honum á ný. Hún kom, sá og sigraði á Landsfundinum og er í dag formaður Sjálfstæðisflokksins, þó litlu hafi munað á henni og Áslaugu. „Mér líður mjög vel en ég skal viðurkenna að ég er svolítið skjálfandi inni í mér akkúrat núna. Ég hafði grun um að þetta yrði jafnt en þetta var hnífjafnt,“ sagði Guðrún eftir að hún var kjörin. „Sigur er alltaf sigur,“ sagði Guðrún, sem tók fram að það væri löngu tímabært að kona væri kjörin formaður Sjálfstæðisflokksins. Eftir kjörið var greint frá nokkrum ráðningum og vistaskiptum í kringum Sjálfstæðisflokkinn. Árni Grétar Finnsson, sem var aðstoðarmaður Guðrúnar í dómsmálaráðuneytinu, var ráðinn sem aðstoðarmaður hennar sem formaður flokksins. Björg Ásta Þórðardóttir tók við sem framkvæmdastjóri flokksins og Berta Gunnarsdóttir var ráðin sem fjármálastjóri hans. Síðan Guðrún var kjörin formaður hefur hún verið áberandi í stjórnarandstöðunni. Hún hefur til að mynda kallað eftir ítarlegri rannsókn á atburðarásinni sem varð til þess að Ásthildur Lóa sagði af sér. Einnig hefur hún, í kjölfar frétta um gagnaleka frá sérstökum saksóknara, að rannsóknarnefnd myndi rannsaka rannsókn hrunmálanna. Jón – Facebook-færslur vekja athygli Jón Gunnarsson var dómsmálaráðherra á fyrri hluta seinna kjörtímabilisins. Jón komst ekki inn á þing í þingkosningunum í lok nóvember, en var varaþingmaður flokksins. Þegar Bjarni sagði af sér á Alþingi var Jón hins vegar næstur inn og er hann þrettándi þingmaður Suðvesturkjördæmis. Hann var bæði nokkuð orðaður við formanns- og varaformannsframboð í Sjálfstæðisflokknum, en endaði á að sækjast ekki eftir því. Skömmu fyrir landsfundinn blandaði hann sér þó í umræðuna með því að gagnrýna Guðrúnu, sem þá hafði boðið sig fram. Í viðtali í þættinum Spursmálum á Mbl.is hafði Guðrún talað um breytingar sem hún gerði í útlendingamálum sem dómsmálaráðherra. Engum öðrum hefði tekist það fyrr en hún kom þeim í gegn fyrr en hún gerði það „Góður leiðtogi hvetur samverkamenn, styður þá til góðra verka og gefur þeim svigrúm til að njóta þess sem vel er gert. Þannig verður til öflug liðsheild þar sem hver og einn fær að njóta sín. Öflugur leiðtogi eignar sér ekki árangur annarra eða gerir lítið úr þeim sem á undan komu,“ skrifaði Jón á Facebook í kjölfarið. Jón Gunnarsson og Guðrún á landsfundi.Vísir/Vilhelm Hann sagði að sér þætti leiðinlegt að þurfa að tjá sig um málið á opinberum vettvangi, en hann sagðist vera búinn að senda Guðrúnu tölvupósta vegna málsins, en að hún hafi ekki svarað honum. Jón sagði hið rétta vera að grunnurinn af þessum árangri hefði verið lagður af þeim sem voru á undan Guðrúnu í dómsmálaráðuneytinu og þingflokki Sjálfstæðisflokksins. „Mér þykir miður að Guðrún Hafsteinsdóttir velji fremur þann kost að slá sig til riddara en að halda til haga því sem rétt er og sé mig nauðbeygðan til að birta þessa færslu þar sem hún hefur hunsað persónuleg skilaboð mín til hennar vegna þessa.“ Jón vakti einnig athygli með athugasemd á Facebook þegar mál Ásthildar Lóu kom upp. Þá skrifaði Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra, færslu þar sem hann velti málinu fyrir sér. Jón lagði orð í belg og sagði ekki allar beinagrindur ríkisstjórnarinnar komnar í ljós. „Sannleikurinn hefur þann eiginleika að leita alltaf uppruna síns og þannig verður það í þessum máli eins og alltaf. Við vitum að það eru fleiri beinagrindur í skottinu hjá ykkur og einn daginn munuð þið þurfa að reyna að jarða þær líkan,“ skrifaði Jón. Lilja – Útilokar ekki að fara í formanninn Lilja Alfreðsdóttir var svona mennta- og menningarmálaráðherra á fyrra kjörtímabilinu, og á seinna kjörtímabilinu gengdi hún embætti ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra. Hún komst ekki á þing í þingkosningunum í lok síðasta árs. Þrátt fyrir það virðist Lilja engan veginn hætt því að velta fyrir sér stjórnmálum. Hún er til að mynda enn varaformaður Framsóknarflokksins. Í þættinum Samtalinu í byrjun árs sagðist Lilja vilja flýta flokksþingi Framsóknarflokksins. Þá vildi hún ekki útiloka formannsframboð. „Þú veist alveg hvað stjórnmálamenn segja. Ég útiloka ekkert í þeim efnum. Ég þarf bara að sjá hvernig landið liggur. Ég sit ekki á þingi þannig að það yrði mjög óvenjulegt. En ég hef mjög mikinn áhuga á stjórnmálum,“ sagði hún. Treystir þú Sigurði Inga til að leiða flokkinn til framtíðar? „Sigurður hefur leitt flokkinn í langan tíma. Við höfum verið í ríkisstjórn meirihlutann af þeim tíma. Ég held að það sé rosalega mikilvægt að við tökum þetta samtal innávið.“ Katrín – Fyrirtækjaeigandinn flýgur heimshorna á milli Katrín Jakobsdóttir leiddi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks, og Vinstri grænna sem forsætisráðherra lengst af, eða frá nóvemberlokum 2017 til apríl í fyrra, þegar hún tilkynnti um forsetaframboð. Katrín hlaut næstflest atkvæði í forsetakosningunum síðasta sumar. Halla Tómasdóttir hreppti hnossið og er í dag forseti lýðveldisins. „Ég var auðvitað grautfúl að tapa þessum kosningum. Ég fór í þetta til að vinna, að sjálfsögðu,“ sagði Katrín Jakobsdóttir í Samtalinu í desember. En eftir forsetakosningarnar hefur verið nóg að gera hjá Katrínu. Hún tók við af Daða Má Kristóferssyni, sem nú er fjármálaráðherra, í stjórn fasteigna Háskóla Íslands. Jafnframt tók hún sæti í háskólaráði. Hjá Endurmenntun háskólans er Katrín búin að kenna námskeið um sögu íslenskra glæpasagna og fyrirhugað er að hún kenni annað námskeið, um íslensku metsölubókina. Á dögunum var greint frá því að Katrín hefði stofnað fyrirtækið Njólubaug slf. Tilgangur félagsins er samkvæmt skráningu fræðslustarfsemi, kennsla, fyrirlestrar, fundarstjórn, ritstörf og ráðgjöf. Þá hefur hún sýnt á samfélagsmiðlum frá þónokkrum ferðum sínum erlendis. Í haust fór hún til New York og ræddi málin á tækniráðstefnu í Columbia-háskólanum. Svo fór hún til Kína, Japan og Kóreu á vegum Hringborðs Norðurslóða. Katrín drakk te í Asíu. Í byrjun árs tók hún þátt í sjálfbærniviku í Abu Dhabi, ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrverandi forseta. Og í febrúar fór hún til Kaupmannahafnar þar sem hún heimsótti höfuðstöðvar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í Kaupmannahöfn. Í apríl fór Katrín aftur til Ameríku, til Chicago í þetta skiptið, en þar tók hún þátt í pallborðsumræðum á viðburðinum Taste of Iceland. Þar á eftir fór hún til Svartfjallalands að ræða ýmis málefni. Kristján Þór - Hefur marga fjöruna sopið Kristján Þór Júlíusson var sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra í fyrsta ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur. Hann tilkynnti í mars 2021 að hann myndi ekki gefa kost á sér til endurkjörs í þingkosningunum 2021, en þar áður hafði hann setið á Alþingi frá 2007. Í lok árs 2021 var greint frá því að Kristján hefði endurnýjað skipstjórnarréttindi sín, og sumarið 2022 kom fram að hann væri starfandi sem slíkur á hvalaskoðunarskipi á Akureyri. Kristján Þór, sem er hér fyrir miðju, var á fremsta bekk á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins.Vísir/Anton Brink Um svipað leyti var greint frá því að Kristján hefði verið kjörinn nýr stjórnarformaður Isavia. Ný stjórn var kjörinn í mars á þessu ári, og því verkefni hjá Kristjáni því lokið. Í dag er Kristján Þór stjórnarformaður DriftEA, sem er nýsköpunarfyrirtæki fyrir norðan. Í aðdraganda forsetakosninganna í fyrra vakti athygli að Kristján var mættur að styðja sína fyrrverandi samstarfskonu, Katrínu, á Akureyri. Þar var hann kominn í hlutverk pulsugerðarmeistara, og grillaði og útbjó pulsur handa gestum og gangandi á viðburði Katrínar. Sigríður - Íslandsmeistari komin í annan flokk Sigríður Á. Andersen var dómsmálaráðherra í árdaga ríkisstjórnarsamstarfsins sem hér er til umfjöllunar. Í mars 2019 var greint frá því að hún hefði ákveðið að stíga til hliðar. Það var eftir að Mannréttindadómstóll Evrópu komst að því að skipun á dómurum við Landsrétt árið 2017 hefði verið ólögmæt. Þórdís Kolbrún tók tímabundið við embættinu og svo Áslaug Arna. Sigríður sneri ekki aftur í ráðherrastólinn, en yfirnefnd Mannréttindadómstólsins átti eftir að staðfesta niðurstöðuna árið 2020. Sigríður gaf aftur kost á sér í öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir þingkosningarnar 2021, en hafði ekki erindi sem erfiði og endaði á að taka heiðurssæti á lista flokksins. Í maí í fyrra varð Sigríður Íslandsmeistari í sínum þyngdarflokki frá fimmtíu til sextíu ára á Íslandsmóti Kraftlyftingasambandsins. Þá tók hún hnébeygju með hundrað kíló, bekkpressu með 55 og réttstöðulyftu með 110 kíló. „Menn komast lítið áfram með agaleysi eða gassagangi,“ skrifaði Sigríður á Facebook í tilefni Íslandsmeistaratitilsins. Svo í október, í aðdraganda þingkosninganna, var greint frá því að Sigríður væri komin í nýjan flokk. Hún leiddi lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, og komst aftur á þing, og er í dag sjötti þingmaður kjördæmisins. Hún hefur verið ansi áberandi í stjórnarandstöðunni á þessu þingi. Sigurður Ingi - Ætlar aftur í kór Sigurður Ingi Jóhannsson var samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á fyrra kjörtímabilinu, og á seinna kjörtímabilinu gengdi hann sama embætti en með nýju nafni, og var þá innviðaráðherra. Þegar Katrín fór í forsetaframboð tók hann við af Þórdísi Kolbrúnu sem fjármála- og efnahagsráðherra. Hann var eini fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins sem endurnýjaði umboð sitt í kosningunum í vetur. Hann komst inn með naumindum, og er í dag tíundi þingmaður Suðurkjördæmis, en formaðurinn ákvað að setja sjálfan sig í annað sæti á lista Framsóknar í Suðurkjördæmi og Halla Hrund Logadóttir tók fyrsta sæti. „Ég get sagt eins og Mark Twain að „fréttir af (pólitísku) andláti mínu og útför (brottför) eru stórlega ýktar“,“ sagði Sigurður Ingi á Facebook eftir kosningarnar. Um þær mundir birtist frétt í greinaflokknum Orðrómur á vef Mannlífs um að Sigurður væri búinn að tryggja sér starf sem ráðgjafi FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, sem er með aðsetur í Róm. „Nú er ég laus og frjáls. Það var ekkert endilega markmið, en nú er spennandi ár fram undan þar sem maður getur sinnt hugðarefnunum betur. Einhverjum datt í hug að búa til þá þvælu að ég væri á leið til Rómar í eitthvað djobb. Það eina sem ég ætla að fara er í karlakórinn minn. Ég er búinn að boða komu mína. Þeir hafa tekið vel í það,“ sagði Sigurður Ingi í Kryddsíldinni á Stöð 2 síðastliðinn gamlársdag. Í upphafi árs var hann duglegur að birta myndir á samfélagsmiðlum og segja frá ferðalögum og fundarhöldum sínum um landið. Svo hefur Sigurður tekið fullan þátt í stjórnarandstöðunni á þingi. Þá lýsti hann því yfir í ræðu á fundi miðstjórnar flokksins í mars, að hann væri til í að leiða Framsóknarflokkinn áfram að flokksþingi loknu. Svandís – Mikið rætt um framtíð flokksins Svandís Svavarsdóttir var heilbrigðisráðherra á fyrra kjörtímabilinu og tók svo við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu á seinna kjörtímabilinu. Nafni þess ráðuneytis var breytt í matvælaráðuneytið. Þegar Katrín sagði af sér varð Svandís innviðaráðherra. Svandís, sem er formaður Vinstri grænna, komst ekki á þing frekar en aðrir frambjóðendur flokksins. Margir hafa þar af leiðandi velt fyrir sér framtíð flokksins. Í viðtali við Vísi í vikunni sagði Svandís að flokkurinn myndi bjóða fram í sveitarstjórnarkosningum, sem fara fram á næsta ári. Svandís sagði engin formleg samtöl hafa átt sér stað milli Vinstri grænna og Sósíalista og Pírata, en eins og frægt er orðið komst enginn þessara þriggja flokka á þing, og hefur nokkuð verið rætt um hvort þeir gætu farið í sameiginlegt framboð „Mér finnst líklegra en ekki að VG verði mjög sýnilegt í þessum sveitastjórnarkosningum, mögulega með öðrum sem eiga samleið með okkur, það geta verið VG og óháðir einhvers staðar. Við höfum fjallað um þessi mál sérstaklega og þá var það alveg skýrt að við viljum halda okkar striki og teljum að við eigum erindi,“ sagði hún við Vísi. Spár um dauð Vinstri grænna eru ótímabærar? „Þær eru það. Við höfum áður þolað mótbyr og gerum það núna líka. Við stöndum í lappirnar og erum bara brött“ Svandís hefur glímt við þungbær áföll á undanförnum árum. Hún missti föður sinn, Svavar Gestsson, Dóttir hennar, tónlistarkonan Una Torfadóttir, fékk heilaæxli og sjálf greindist Svandís með krabbamein um það leyti sem bera átti upp vantrauststillögu henni á hendur sem ráðherra í byrjun árs 2024. Hún ræddi um þessi mál í viðtali í þættinum Segðu mér á Rás 1 í lok síðasta mánaðar. Þá sagði hún slík áföll allt annars eðlis en það að detta af þingi. „Þegar það kemur að einhverju svona eins og að missa vinnuna eða detta út af þingi, fyrir mig persónulega, þá verður svoleiðis viðburður einhvern veginn í allt öðru ljósi þegar maður er búinn að ganga í gegnum svona hremmingar sem snúast um heilsufar. Það er allt svo afstætt,“ sagði Svandís. „Það verður ekki áfall af þeirri stærðargráðu sem það er að veikjast alvarlega eða missa nákominn ættingja. Heldur bara viðfangsefni sem maður finnur út úr og setur undir sig hausinn.“ Willum Þór – Orðinn forseti ÍSÍ Willum Þór gengdi embætti heilbrigðisráðherra á síðara kjörtímabilinu. Honum tókst ekki að endurnýja umboð sitt á Alþingi í þingkosningunum í vetur. Hann virtist vera inni alla kosninganóttina, þangað til síðustu tölur bárust. „Þetta var svolítið skrítin upplifun. Ég taldi þetta nokkuð í höfn þegar ég fór að sofa en svo kom þessi skringilega niðurstaða einhvern veginn og aðeins óvænt og já, ég viðurkenni það alveg, þetta eru auðvitað vonbrigði og ekkert sérstök upplifun,“ sagði Willum daginn eftir kosningarnar. Þá sagðist hann jafnframt ekki útiloka að snúa aftur til starfa á vettvangi knattspyrnunnar, en Willum starfaði lengi vel sem þjálfari. Um miðjan mars, nokkru eftir að Lárus Blöndal tilkynnti að hann hygðist stíga til hliðar sem forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), tilkynnti Willum um að hann myndi taka slaginn og bjóða sig fram. Willum var síðan um miðjan maímánuð kjörinn forseti ÍSÍ, og það með yfirburðum. Hann hlaut 109 af 145 atkvæðum. „Það eru alls konar tilfinningar en fyrst og fremst þakklæti og auðmýkt. En ég er vissulega mjög meðvitaður um ríka ábyrgð sem að hvílir á þessu embætti,“ sagði Willum í kjölfarið. Þórdís Kolbrún – Enn með hugann við utanríkismál Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir var ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra á fyrra kjörtímabilinu, og eftir að Sigríður sagði af sér var hún um skamma hríð dómsmálaráðherra líka. Hún var svo utanríkisráðherra í byrjun seinna kjörtímabilisins, en þegar Bjarni sagði af sér tók hún við sem fjármála- og efnahagsráðherra. Þegar Katrín sagði svo af sér varð hún aftur utanríkisráðherra. Hún endurnýjaði umboð sitt á Alþingi, og við brotthvarf Bjarna varð hún fyrsti þingmaður Suðvesturkjördæmis. Líkt og margir aðrir var Þórdís orðuð við formannsframboð í Sjálfstæðisflokknum. Um þær mundir var hún varaformaður flokksins og því margir sem gerðu ráð fyrir að hún myndi sækjast eftir formennsku. Hún tilkynnti þó í lok janúar að hún myndi ekki sækjast eftir formennsku, eða öðru embætti í flokknum. Hún hygðist halda áfram sem óbreyttur þingmaður. „En það hefur ekki verið markmið í sjálfu sér; að það sem keyri mann áfram sé að „vinna leikinn“. Það er ekki sami hluturinn. Ég hef ætíð haft metnað til að sinna þeim verkefnum sem mér er treyst fyrir en ekki sérstaklega upptekin af því að ná tilteknum metorðum,“ skrifaði Þórdís á Facebook og sagði spennandi tíma fram undan. „Ég hlakka til að vera frjálsari, fá meiri tíma til að lesa bækur og skrifa, rækta það að hafa skynbragð og skilning á því sem er að gerast í kringum okkur, og veldur mér raunverulegum áhyggjum.“ Í stjórnarandstöðu hefur fyrrverandi utanríkisráðherrann lagt nokkurra áherslu á utanríkismálin. Til að mynda gagnrýndi hún Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra fyrir að mæta ekki á fund leiðtoga Norðurlandanna sem fór fram í Danmörku í lok janúar, en það var um það leyti sem umræða um áhuga Bandaríkjanna á Grænlandi var í algleymingi. „Það minnsta sem við getum gert til að undirstrika að við séum sjálfstæð og fullvalda þjóð er að sýna því hlutverki virðingu, í því felst að mæta á staðinn. Þar eigum við að standa við hlið vina, þjóð á meðal þjóða,“ skrifaði Þórdís á heimasíðu sína. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar (2024) Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Vinstri græn Mest lesið Aron segist hættur í ClubDub Lífið Það allra heitasta í sumarförðuninni Tíska og hönnun „Hann var ekkert eðlilega góður í sleik“ Makamál Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Lífið Orsakir flösu og áhrifarík meðferð Lífið samstarf Hildur Yeoman lofuð í hástert á Style Bubble Lífið Hvar eru þau nú? Lífið Aron Kristinn og Lára keyptu nýstárlega miðbæjarperlu Lífið Vilja stimpla sig inn með stæl Lífið Fjórum íslenskum útgáfum fagnað í tónlistarveislu í Iðnó Lífið