Tíska og hönnun

Glæsi­leg í Cannes í sérsaumaðri ís­lenskri hönnun

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Saga Garðars var stórglæsileg í íslenskri hönnun á Cannes hátíðinni.
Saga Garðars var stórglæsileg í íslenskri hönnun á Cannes hátíðinni. Ammar Abd Rabbo

Leikkonan og grínistinn Saga Garðarsdóttir skein sannarlega skært í íslenskri hönnun þegar hún gekk rauða dregilinn á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Hún naut sín í sólinni á frönsku rívíerunni ásamt fríðu föruneyti úr kvikmyndinni Ástin sem eftir er.

Saga var mætt á hátíðina til að fylgja eftir kvikmyndinni sem heitir á ensku The Love That Remains og fer hún með stórt hlutverk þar. 

Saga stórglæsileg í förðun.Snorri Helgason

Hlynur Pálmason er leikstjóri og meðal annarra leikara eru Ingvar E. Sigurðsson, Sverrir Guðnason, Anders Mossling, Ída Mekkin Hlynsdóttir og Katla Margrét Þorgeirsdóttir. 

Anton Máni Svansson, Anders Mossling, Saga Garðarsdóttir, Grímur Hlynsson, Hlynur Pálmason, Þorgils Hlynsson, Sverrir Guðnason, Ida Mekkin Hlynsdóttir, Ingvar Eggert Sigurðsson og Katrin Pors fylgdu kvikmyndinni Ástin Sem Eftir Er út til Cannes. Tristan Fewings/Getty Images

Saga birti glæsilega mynd af sér á Instagram í gulum kjól sem var sérsaumaður á hana af fatahönnuðinum Sigríði Ágústu. Skórnir eru frá íslenska skómerkinu Kalda og Saga þakkar líkamsræktastöðinni Afreki fyrir byssurnar, það er að segja tónaða upphandleggina. 

„Ég verð að nýta tækifærið og segja megi Katrín Alda eigandi Kalda lengi lifa. Hún gerir svo glæsilega skó og gerir mér kleift að ganga hælum því hún gerir hælaskó í stærðum 41 og 42. Án hennar hefði ég bara verið í einhverjum klossum,“ segir Saga glöð í bragði í samtali við blaðamann.

Kjóllinn frá Sigríði Ágústu, skórnir frá Kalda og byssurnar frá Afrek Fitness.STILL VIVID

Fatahönnuðurinn Sigríður Ágústa hefur komið víða við og þar á meðal hannað fyrir íslensku stjörnurnar Bríeti og GDRN. Blaðamaður náði tali af Sigríði og segir hún að það hafi verið ótrúlega gaman að hanna fyrir Sögu. 

„Þetta var  svo skemmtilegt ferli. Ég er svo þakklát fyrir traustið sem Saga sýndi mér Kjóllinn endurspeglar bæði karakter Sögu en vorum líka með kvikmyndina í huga og verk Hlyns, hugljúf og falleg.“ 

Það gekk á ýmsu á dreglinum og steig Sverrir óvart aðeins á kjól Sögu í tröppunum.STILL VIVID

Þetta er í fyrsta sinn sem hún hannar fyrir svona hátíð og það hlýtur að vera magnað augnablik að sjá hönnun sína á svo stórum vettvangi.  

„Það sem mér fannst skipta mestu var að sjá að Sögu leið vel og hún var svo geislandi. Þá var markmiðinu náð, svo gaf það alveg smá auka kitl í magann að sjá hönnunina á svona stóru venue-i, ætla ekki að ljúga því,“ svarar hún kímin. 

Hér má sjá þennan einstaka kjól betur.Ammar Abd Rabbo

Hér má kynna sér betur hönnun Sigríðar Ágústu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.