Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum Sindri Sverrisson skrifar 16. maí 2025 20:10 Elvar Örn Jónsson er algjör lykilmaður á báðum endum vallarins hjá Melsungen. Getty/Dean Mouhtaropoulos Íslendingaliðið Melsungen heldur áfram að berjast um þýska meistaratitilinn í handbolta og komst yfir stóra hindrun í kvöld með 29-23 útisigri gegn Hannover-Burgdorf sem situr í 4. sæti deildarinnar.
Melsungen er nú jafnt Füchse Berlín á toppnum, með 48 stig, eftir 29 leiki af 34. Magdeburg er einnig með í titilbaráttunni, með 43 stig en tvo leiki til góða á hin tvö liðin. Vonir Hannover-Burgdorf um titilinn eru hins vegar úr sögunni núna en liðið er með 43 stig eftir 29 leiki. Elvar Örn Jónsson var að vanda í algjöru lykilhlutverki hjá Melsungen og endaði næstmarkahæstur með sex mörk en aðeins Timo Kastening skoraði fleiri eða sjö. Arnar Freyr Arnarsson var hins vegar ekki á meðal markaskorara liðsins. Melsungen var marki undir í hálfleik, 15-14, en náði fljótt forystunni í seinni hálfleiknum og hleypti heimamönnum ekki of nálægt sér. Munurinn var þó aðeins tvö mörk, 25-23, þegar um fimm mínútur voru eftir af leiknum en Melsungen fékk ekki á sig mark eftir það. Melsungen mætir næst Wetzlar á mánudaginn en risaleikurinn við Füchse í Berlín er svo 29. maí, í fjórðu síðustu umferðinni. Fyrr í kvöld skoraði Ýmir Örn Gíslason tvö mörk fyrir Göppingen sem varð að sætta sig við 31-30 tap gegn Bietigheim á útivelli. Göppingen siglir þó lygnan sjó í 13. sæti með 19 stig en Bietigheim þurfti á stigunum að halda í fallbaráttunni og er með 12 stig í þriðja neðsta sæti.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira