Miðasala á Dúllubar í dag og VIP-miðar á 15.000 krónur Sindri Sverrisson skrifar 9. maí 2025 09:30 Silfurskeiðin verður á sínum stað í Umhyggjuhöllinni á sunnudagskvöld þegar Tindastóll mætir í heimsókn. vísir/Anton Ljóst má vera að færri komast að en vilja á næsta leik einvígis Stjörnunnar og Tindastóls, í úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta, eftir að einvígið hófst með látum á Sauðárkróki í gærkvöld. Eftir óhemju mikla spennu allan leikinn náði Tindastóll að éta upp fimm stiga forskot Stjörnunnar á örskotsstundu og tryggja sér sigur í gær, 93-90. Þar með hafa Stólarnir náð í fyrsta sigurinn en vinna þarf þrjá leiki til að landa Íslandsmeistaratitlinum. Næsti leikur er heimaleikur Stjörnunnar, í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ, og fram kemur í færslu Stjörnumanna á Facebook að eftirspurnin eftir miðum sé mikil. Tindastóll mun sjá um sölu á sínum hluta miða en Stjörnufólk mætir í röð á Dúllubar á félagssvæði sínu í hádeginu í dag, þar sem miðasala hefst klukkan 12. Miðaverð er 3.000 krónur og skiptir þá ekki máli á hvaða aldri fólk er. Einnig eru til sölu sérstakir VIP-miðar í fjórar fremstu sætaraðirnar. Miðarnir í fremstu þrjár raðirnar kosta 15.000 krónur stykkið en í fjórðu röðina kosta þeir 8.000 krónur. Stjarnan er í úrslitum Íslandsmótsins í fyrsta sinn í tólf ár en Stólarnir eru orðnir góðu vanir eftir að hafa núna komist í úrslitin þrisvar á síðustu fjórum árum. Stjarnan er í leit að sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli en Tindastóll vann titilinn í fyrsta sinn fyrir tveimur árum.
Eftir óhemju mikla spennu allan leikinn náði Tindastóll að éta upp fimm stiga forskot Stjörnunnar á örskotsstundu og tryggja sér sigur í gær, 93-90. Þar með hafa Stólarnir náð í fyrsta sigurinn en vinna þarf þrjá leiki til að landa Íslandsmeistaratitlinum. Næsti leikur er heimaleikur Stjörnunnar, í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ, og fram kemur í færslu Stjörnumanna á Facebook að eftirspurnin eftir miðum sé mikil. Tindastóll mun sjá um sölu á sínum hluta miða en Stjörnufólk mætir í röð á Dúllubar á félagssvæði sínu í hádeginu í dag, þar sem miðasala hefst klukkan 12. Miðaverð er 3.000 krónur og skiptir þá ekki máli á hvaða aldri fólk er. Einnig eru til sölu sérstakir VIP-miðar í fjórar fremstu sætaraðirnar. Miðarnir í fremstu þrjár raðirnar kosta 15.000 krónur stykkið en í fjórðu röðina kosta þeir 8.000 krónur. Stjarnan er í úrslitum Íslandsmótsins í fyrsta sinn í tólf ár en Stólarnir eru orðnir góðu vanir eftir að hafa núna komist í úrslitin þrisvar á síðustu fjórum árum. Stjarnan er í leit að sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli en Tindastóll vann titilinn í fyrsta sinn fyrir tveimur árum. Úrslitaeinvígið 2025 8. maí: Tindastóll - Stjarnan, 93-90 11. maí: Stjarnan - Tindastóll, kl. 20.15 14. maí: Tindastóll - Stjarnan, kl. 19.15 18. maí: Stjarnan - Tindastóll, kl. 19.15 (ef þarf) 21. maí: Tindastóll - Stjarnan, kl. 19.15 (ef þarf)
Úrslitaeinvígið 2025 8. maí: Tindastóll - Stjarnan, 93-90 11. maí: Stjarnan - Tindastóll, kl. 20.15 14. maí: Tindastóll - Stjarnan, kl. 19.15 18. maí: Stjarnan - Tindastóll, kl. 19.15 (ef þarf) 21. maí: Tindastóll - Stjarnan, kl. 19.15 (ef þarf)
Bónus-deild karla Stjarnan Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Baulað á Trump í New York Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Körfubolti Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóstkassann Fótbolti Fleiri fréttir KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Sjá meira