Van de Ven: Tottenham vill vinna Evrópudeildina fyrir Postecoglou Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. apríl 2025 15:00 Micky van de Ven og félagar í Tottenham Hotspur þurfa sigur í Þýskalandi í kvöld ætli þeir i undanúrslit Evrópudeildarinnar. Getty/ Visionhaus Micky van de Ven og félagar í Tottenham verða í eldlínunni í kvöld í seinni leik liðsins í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Félagið hefur ekki unnið titil í sautján ár og Evrópudeildin er eini bikarinn sem félagið á enn möguleika á því að vinna á þessu tímabili.
Ástralski knattspyrnustjórinn Ange Postecoglou hefur verið mikið gagnrýndur í vetur en hollenski miðvörðurinn segir að leikmenn liðsins vilji vinna Evrópudeildina fyrir Postecoglou. Tottenham tapaði 4-2 fyrir Úlfunum um síðustu helgi og það var sautjánda tap liðsins á leiktíðinni. Það þýðir að liðið er dottið niður í fimmtánda sætið í ensku úrvalsdeildinni. Það er verk að vinna í Evrópudeildinni eftir 1-1 jafntefli á heimavelli í fyrri leiknum á móti Eintracht Frankfurt. „Þetta hefur ekki verið okkar besta tímabil og stuðningsmennirnir vilja sjá okkur spila betur og gera betur en við gerðum í þessum tapleikjum. Þegar allt liðið er öflugt þá getum við unnið falleg afrek. Vonandi getum við sýnt öllum þeim það sem efast um okkur,“ sagði Micky van de Ven á blaðamannafundi fyrir leikinn. „Við höfum fulla trú á stjóranum og hvernig hann vill að við spilum. Við viljum vinna titilinn fyrir hann en einnig fyrir okkur, fyrir félagið og fyrir stuðningsmennina,“ sagði Van de Ven. „Við viljum afreka eitthvað á þessari leiktíð og þetta er besti möguleikinn til þess,“ sagði Van de Ven. Tottenham vann sinn síðasta titil árið 2008 þegar liðið vann enska deildabikarinn. Liðið vann síðast Evrópukeppni vorið 1984 þegar Tottenham fagnaði sigri í UEFA-keppninni, forvera Evrópudeildarinnar.
Enski boltinn Evrópudeild UEFA Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira