Rigning sunnan- og vestantil Atli Ísleifsson skrifar 9. apríl 2025 07:08 Það verður fremur hlýtt í veðri á landinu í dag. Vísir/Vilhelm Úrkomusvæði nálgast nú landið úr vestri og fer að rigna sunnan- og vestanlands í morgunsárið.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði áfram suðlæg átt í dag, víða strekkingur eða allhvass vindur, en lengst af hægari og þurrt að kalla fyrir austan. Í kvöld mun svo draga úr vindi og úrkomu sunnan- og vestanlands. Það verður fremur hlýtt í veðri þar sem hiti verður á bilinu sex til sextán stig og hlýjast fyrir austan. „Á morgun er útlit fyrir hægari sunnanátt með dálitlum skúrum eða súld, en áfram úrkomulítið á Austurlandi. Annað kvöld nálgast skil frá lægð, sem nú er stödd við Nýfundnaland, landið. Þá bætir aftur í vind sunnan- og vestantil á landinu og fer að rigna. Á föstudag verður áttin suðvestlægari og þá kólnar smám saman með éljum þegar líður á daginn,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Sunnan 5-10 m/s og víða dálitlar skúrir, en úrkomulítið á Austurlandi. Sunnan 8-15 og rigning sunnan- og vestanlands um kvöldið. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast fyrir austan. Á föstudag: Suðvestan 8-15 og skúrir, en bjart að mestu á Austurlandi. Kólnar með éljum seinnipartinn. Á laugardag: Austlæg eða breytileg átt 3-10 og víða bjart með köflum, en stöku él fyrir norðan og fer að snjóa syðst á landinu síðdegis. Hiti 0 til 5 stig að deginum. Á sunnudag (pálmasunnudagur): Norðaustan 8-15 og dálítil él eða snjókoma, en yfirleitt bjart á Vesturlandi. Frost 0 til 5 stig, en hiti 0 til 4 stig að deginum suðvestantil. Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt með dálitlum éljum, en að mestu bjart sunnan heiða. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira