Framlengja samstarf sem hefur komið tugum sprota á laggirnar Árni Sæberg skrifar 3. apríl 2025 15:28 Ásta Sóllilja, til vinstri, og Þuríður Björg, til hægri, við heldur óhefðbundna undirritun síðastliðinn föstudag. Nova og Klak - Icelandic Startups undirrituðu samning um áframhaldandi samstarf um Startup Supernova nýsköpunarhraðalinn til næstu þriggja ára í Grósku á föstudaginn. Hraðallinn hefur verið haldinn árlega frá árinu 2020 og markmið hans er að styðja frumkvöðla við að þróa viðskiptalausnir sem eiga erindi á alþjóðamarkað.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að hraðallinn hafi skilað þátttakendum miklum árangri frá því að honum var hrundið af stað fyrir fimm árum, en í dag séu starfandi 32 fyrirtæki sem hafa farið í gegnum hraðalinn og samanlagt starfi hjá þeim 150 manns. 3,5 milljarða króna tekjur á ári Rekstrartekjur þessara fyrirtækja nemi um 3,5 milljörðum króna á ársgrundvelli og heildarverðmæti sem hraðallinn hefur skapað því umtalsverð. Meðal sprota sem hafi komist á laggirnar megi nefna Plaio, Quick lookup, Opus Futura og Livey, sem hafi þróað ólíkar hugbúnaðarlausnir, sem hafi vakið verðskuldaða athygli hér heima og erlendis. „Með Startup Supernova erum við að skapa vettvang þar sem frumkvöðlar úr ólíkum atvinnugreinum fá tækifæri til að vaxa og þróa hugmyndir sínar þannig að þær verði spennandi fyrir alþjóðlega fjárfesta og sjóði. Það er lykilatriði að íslenskir frumkvöðlar hugi strax að því hvernig þeir geti skalað upp lausnir sínar til að ná lengra. Við erum virkilega ánægð með að halda áfram þessu öfluga samstarfi með Nova næstu þrjú árin – það skiptir máli að leiðandi fyrirtæki taki virkan þátt í að styðja nýsköpun á Íslandi,“ er haft eftir Ástu Sóllilju Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Klak – Icelandic Startups. Stökkpallur fyrir nýsköpun Startup Supernova hefjist fimmtudaginn 15. maí með Klúðurkvöldi í verslun Nova í Lágmúla 9, þar sem opnað verði fyrir skráningar í hraðalinn. Opið verði fyrir umsóknir til og með 18. júní, en þá hefjist Superclass vinnustofan, sem fari fram dagana 19. til 20. júní. Að vinnustofunni lokinni verði tíu teymi valin til þátttöku í sex vikna viðskiptahraðli, sem hefjist 5. ágúst. „Við erum ótrúlega stolt af þeim árangri sem sprotarnir hafa náð í gegnum Startup Supernova hingað til og hlökkum til að styðja áfram við frumkvöðla með stórar hugmyndir. Við hjá Nova elskum nýsköpun og vinnum sjálf stöðugt að því að hreyfa við nálinni og viljum skora á aðra til að gera það líka. Með Startup Supernova höfum við skapað stökkpall fyrir einmitt þetta. Við sjáum líka að hraðallinn hefur skapað mikið virði fyrir íslenskt viðskiptalíf og samfélagið allt. Við erum því mjög spennt fyrir áfamhaldandi samstarfi með hraðalinn næstu ár,“ er haft eftir Þuríði Björgu Guðnadóttur, framkvæmdastjóra markaðssóknar hjá Nova.
Nýsköpun Nova Tækni Mest lesið Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Neytendur Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Hafði betur eftir að hafa fengið of stór gleraugu í hendurnar Neytendur Boðar aðgerðir til að koma reglu á „gjaldskyldufrumskóg“ Neytendur Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Fleiri fréttir Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Sjá meira