Sorrí Valdi og allir hinir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. mars 2025 11:59 Valdimar Grímsson var mikill markvarðahrellir á árum áður. Fyrra tímabil hans með KA var hann hársbreidd frá því að skora tíu mörk eða meira að meðaltali í leik. vísir/vilhelm Baldur Fritz Bjarnason varð markakóngur Olís-deildar karla tímabilið 2024-25. Í frétt á Vísi í gær var því haldið fram með nokkurri vissu að hann ætti nú metið yfir flest mörk að meðaltali í leik í sögu efstu deildar karla. Það er rangt.
Baldur skoraði 211 mörk í 22 leikjum fyrir ÍR í Olís-deildinni í vetur. Það gera 9,59 mörk að meðaltali. Það eru tölur sem sjaldan sjást og því lagðist ég í rannsóknarvinnu á því hvort þetta væri met. Í kjölfarið var því slegið fram með örlitlum fyrirvara að Baldur ætti metið yfir flest mörk að meðaltali í leik í efstu deild karla í handbolta á Íslandi. Það er ekki rétt. Glöggur lesandi benti mér á að Valdimar Grímsson hefði skorað 198 mörk fyrir KA tímabilið 1993-94, eða 9,9 mörk að meðaltali í leik. Í umfjöllun DV um markahæstu menn tímabilsins kom fram að hann hefði misst af tveimur deildarleikjum með KA tímabilið 1993-94. Hefði hann spilað alla 22 leikina í 1. deild hefði hann ef til vill náð að skora tíu mörk eða meira að meðaltali í leik. Valdimar Grímsson var hársbreidd frá því að vera með tíu mörk að meðaltali í leik tímabilið 1993-94.úrklippa úr dv 22. mars 1994 Í dag stakk reynsluboltinn Sigmundur Ó. Steinarsson svo niður penna á handbolta.is og skrifaði grein um markakónga fyrri ára. Þar bendir hann meðal annars á að Gunnlaugur Hjálmarsson hefði skorað 10,5 mörk að meðaltali fyrir ÍR 1961. Hann spilaði þó aðeins fjóra leiki. Gunnlaugur varð aftur markakóngur árið eftir, þá með 52 mörk í fimm leikjum, eða 10,4 mörk að meðaltali. Tímabilið 1963 skoraði Ingólfur Óskarsson svo 122 mörk fyrir Fram í tíu leikjum, eða 12,2 mörk að meðaltali í leik. Vissulega væri þægilegra ef gagnagrunnur HSÍ næði lengra en þrjátíu ár aftur í tímann þannig að upplýsingar um markaskor og annað slíkt væri aðgengilegra. En svo er því miður ekki. Eftir stendur samt að metið yfir flest mörk í leik að meðaltali á einu tímabili í efstu deild karla í handbolta er ekki í eigu Baldurs. Allavega ekki enn. Það er hér með leiðrétt.
Olís-deild karla ÍR KA Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira