„Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ Aron Guðmundsson skrifar 9. mars 2025 15:05 Samúel Kári Friðjónsson, leikmaður Bestu deildar liðs Stjörnunnar, fékk að líta rauða spjaldið fyrir glórulausa tæklingu í leik liðsins gegn KR í Lengjubikarnum í fótbolta sem nú stendur yfir.
Atvikið átti sér stað á 39.mínútu leiksins. Boltinn barst til Gabríels Hrannars Eyjólfssonar, leikmanns KR úti á hægri kanti. Samúel Kári fór í glórulausa tæklingu og Gabríel lá óvígur eftir en gat svo haldið leik áfram. Elías Ingi Árnason, dómari leiksins gat ekki annað en gefið Samúel rauða spjaldið en upp úr sauð milli leikmanna liðanna eftir tæklingu hans. Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA er greinilega að fylgjast með leiknum, sem er sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, og tjáði sig um tæklingu Samúels á samfélagsmiðlinum X: Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum í Stjarnan vs KR— saevar petursson (@saevarp) March 9, 2025 „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum í Stjarnan vs KR,“ skrifar hann í færslu á samfélagsmiðlinum. Í aðdraganda brotsins vildu Stjörnumenn meina að brotið hafi verið á Örvari Eggertssyni leikmanni þeirra og mátti heyra menn í þjálfarateymi Stjörnunnar segja að til tæklingar Samúels hefði aldrei komið ef Elías hefði dæmt þegar að þeim sýndist brotið á Örvari. KR vann leikinn 3-1 og er komið í undanúrslit Lengjubikarsins.
Lengjubikar karla Stjarnan KR Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira