Vilja færa skipulagsvald alþjóðaflugvalla til ríkis Kristján Már Unnarsson skrifar 6. mars 2025 20:20 Séð yfir Reykjavíkurflugvöll. Til hægri má sjá Hlíðarendahverfið sem Reykjavíkurborg skipulagði með þeim hætti að ein af flugbrautum vallarins varð ónothæf. Arnar Halldórsson Sjálfstæðismenn vilja færa skipulagsvald yfir alþjóðaflugvöllum á Íslandi frá sveitarfélögum yfir til ríkisins. Þetta kemur fram í stjórnmálaályktun sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti um síðustu helgi. „
Skipulagsvald yfir landi sem notað er til varnarmála og reksturs alþjóðaflugvalla skal vera á forræði ríkisins,“ segir í samþykkt sjálfstæðismanna. Keflavíkurflugvöllur nýtur raunar sérstöðu í skipulagsmálum. Hann er eini alþjóðaflugvöllur landsins þar sem skipulagsvaldið er ekki á forræði viðkomandi sveitarfélaga. Þar hefur Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar, sem heyrir undir innviðaráðherra, umsjón með skipulagsmálum á sveitarstjórnarstigi og veitir lokaákvörðun um deili- og aðalskipulag flugvallarsvæðisins. Ráðherra skipar alla fimm nefndarmenn, þar af einn samkvæmt tilnefningu frá utanríkisráðuneyti og tvö samkvæmt tilnefningu sveitarfélaga á Suðurnesjum. Skipulagsvald Keflavíkurflugvallar er alfarið hjá ríkinu.Vilhelm Gunnarsson Skipulagsvald hinna þriggja alþjóðaflugvalla landsins heyrir undir viðkomandi sveitarfélög. Þeir eru Reykjavíkurflugvöllur, Akureyrarflugvöllur og Egilsstaðaflugvöllur. Samkvæmt samþykkt landsfundarins vill Sjálfstæðisflokkurinn að það sama gildi um þessa þrjá flugvelli og Keflavíkurflugvöll; að ríkið fari með skipulagsvald þeirra allra. Leiða má líkur að því að þau áralöngu átök, sem verið hafa um Reykjavíkurflugvöll, einkum á milli borgarstjórnar Reykjavíkur og ríkisvaldsins, séu kveikjan að samþykkt sjálfstæðismanna. Nýjasta dæmið er sá dráttur sem varð á því að borgaryfirvöld létu lækka trjágróður í Öskjuhlíð, sem leiddi til þess að einni flugbraut vallarins var lokað. Lokun flugbrautarinnar varð til þess að bæjar- og sveitarstjórar tíu landsbyggðarsveitarfélaga, sem mikið eiga undir flugsamgöngum, birtu sameiginlega grein á Vísi í síðasta mánuði þar sem þeir mótmæltu því að trjágróður í Öskjuhlíð nyti forgangs þegar um líf og heilsu fólks utan af landi væri að ræða. Sögðu að öllum mætti vera ljóst að Reykjavíkurflugvöllur færi ekki burtu úr Vatnsmýrinni á næstu árum eða jafnvel áratugum. Ennfremur að allt tal um að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur lýsti skilningsleysi á aðstöðu þeirra sem byggju úti á landi. Hugmyndin um að ríkið taki yfir skipulagsvald allra alþjóðaflugvallanna er ekki ný. Þannig varpaði Njáll Trausti Friðbertsson, þáverandi bæjarfulltrúi á Akureyri og núverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, þessari hugmynd fram í bæjarstjórn Akureyrar árið 2015. Njáll var á sínum tíma annar forsvarsmanna Hjartans í Vatnsmýri, undirskriftasöfnunar til stuðnings flugvellinum.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 2025 Sjálfstæðisflokkurinn Keflavíkurflugvöllur Reykjavíkurflugvöllur Akureyrarflugvöllur Egilsstaðaflugvöllur Skipulag Borgarstjórn Fréttir af flugi Tengdar fréttir Flugbrautin opnuð á ný Frá og með morgundeginum verður sjúkraflug um austur-vesturflugbraut Reykjavíkurflugvallar leyft á ný. Brautin hefur verið lokuð í tæpar þrjár vikur. 26. febrúar 2025 18:31 Krefja borgina um tafarlaus viðbrögð Sveitarstjórn Norðurþings hefur gefið út yfirlýsingu þar sem tekið er undir kröfu miðstöðvar sjúkraflugs um að Reykjavík tryggi opnun flugbrauta 13 og 31 með eins tafarlausum hætti og mögulegt er. Aðgengi að Reykjavíkurflugvelli sé lífsnauðsynlegt fyrir veika og slasaða af stærstum hluta landsins. 9. febrúar 2025 18:09 Ráðherra segist ekki skilja hvað þau hjá borginni eru að hugsa Eyjólfur Ármannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra segir grafalvarlegt mál að einni flugbraut Reykjavíkurflugvallar verði lokað sökum þess að Reykjavíkurborg hafi dregið að fella trjágróður í Öskjuhlíð. Ráðherrann segist ekki skilja hvað þau hjá borginni eru að hugsa með því að haga sér svona. 6. febrúar 2025 22:20 Ný loftferðalög skerða skipulagsvald sveitarfélaga yfir flugvöllum Ný ákvæði laga um loftferðir, sem Alþingi samþykkti á lokasprettinum í fyrrinótt, gera skipulagsreglur flugvalla rétthærri skipulagi sveitarfélaga. Bæði Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg lögðust gegn lagabreytingunni og sagði fráfarandi borgarstjórnarmeirihluti í Reykjavík hana kollvarpa því skipulagsvaldi sem sveitarfélög hefðu yfir flugvöllum. 17. júní 2022 06:36 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Sjá meira
Flugbrautin opnuð á ný Frá og með morgundeginum verður sjúkraflug um austur-vesturflugbraut Reykjavíkurflugvallar leyft á ný. Brautin hefur verið lokuð í tæpar þrjár vikur. 26. febrúar 2025 18:31
Krefja borgina um tafarlaus viðbrögð Sveitarstjórn Norðurþings hefur gefið út yfirlýsingu þar sem tekið er undir kröfu miðstöðvar sjúkraflugs um að Reykjavík tryggi opnun flugbrauta 13 og 31 með eins tafarlausum hætti og mögulegt er. Aðgengi að Reykjavíkurflugvelli sé lífsnauðsynlegt fyrir veika og slasaða af stærstum hluta landsins. 9. febrúar 2025 18:09
Ráðherra segist ekki skilja hvað þau hjá borginni eru að hugsa Eyjólfur Ármannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra segir grafalvarlegt mál að einni flugbraut Reykjavíkurflugvallar verði lokað sökum þess að Reykjavíkurborg hafi dregið að fella trjágróður í Öskjuhlíð. Ráðherrann segist ekki skilja hvað þau hjá borginni eru að hugsa með því að haga sér svona. 6. febrúar 2025 22:20
Ný loftferðalög skerða skipulagsvald sveitarfélaga yfir flugvöllum Ný ákvæði laga um loftferðir, sem Alþingi samþykkti á lokasprettinum í fyrrinótt, gera skipulagsreglur flugvalla rétthærri skipulagi sveitarfélaga. Bæði Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg lögðust gegn lagabreytingunni og sagði fráfarandi borgarstjórnarmeirihluti í Reykjavík hana kollvarpa því skipulagsvaldi sem sveitarfélög hefðu yfir flugvöllum. 17. júní 2022 06:36