Frost að sjö stigum og von á næstu lægð Atli Ísleifsson skrifar 26. febrúar 2025 07:09 Gera má ráð fyrir frosti á bilinu núll til sjö stigum. Vísir/Vilhelm Dálítil lægð gengur austur yfir landið í dag og fylgir henni vestlæg eða breytileg átt.
Víða má reikna með golu eða kalda og éljum, en yfirleitt verður þurrt á Norðausturlandi. Á vef Veðurstofunnar segir að gera megi ráð fyrir frosti á bilinu núll til sjö stigum. „Suðvestan kaldi eða strekkingur á morgun og él eða slydduél, en áfram úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hlýnandi veður. Annað kvöld kemur djúp lægð inn á Grænlandshaf. Henni fylgir vaxandi suðaustanátt og það fer að rigna sunnan- og vestanlands, talsverð rigning á þeim slóðum um nóttina. Sunnan hvassviðri eða stormur á föstudag og vætusamt og hlýtt veður, en úrkomuminna norðaustantil. Síðdegis dregur úr vindi og það kólnar með éljum um landið sunnan- og vestanvert. Um helgina er svo útlit fyrir áframhaldandi lægðagang með umhleypingasömu veðri,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 16.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Suðvestan 8-13 m/s og él, en yfirleitt þurrt um landið norðaustanvert. Hiti kringum frostmark. Vaxandi suðaustanátt um kvöldið og fer að rigna suðvestantil. Hlýnar í veðri. Á föstudag: Sunnan 15-25 og rigning, hvassast vestantil, en úrkomuminna norðaustanlands. Hiti 2 til 9 stig. Suðvestan 13-20 síðdegis og kólnar með éljum um landið sunnan- og vestanvert. Á laugardag: Suðvestan 15-23 um morguninn og skúrir eða él, en úrkomulítið á Austurlandi. Hiti 0 til 5 stig. Dregur síðan úr vindi, suðvestan 8-15 seinnipartinn og hlýnar með rigningu sunnan- og vestanlands, en hvessir aftur um kvöldið. Á sunnudag: Ákveðin suðvestanátt og kólnar með éljum, en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Á mánudag: Vestan- og suðvestanátt og allvíða él. Hiti 0 til 4 stig. Hlýnar með rigningu um kvöldið. Á þriðjudag: Suðvestanátt og skúrir eða él, en styttir upp á Norðaustur- og Austurlandi.
Veður Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira