Enski boltinn

Amorim til Rashford: Ef hann breytist þá mun ég nota hann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ruben Amorim og Marcus Rashford á æfingu í lok nóvember. Nokkrum vikum síðar setti Portúgalinn enska framherjann í frystikistuna.
Ruben Amorim og Marcus Rashford á æfingu í lok nóvember. Nokkrum vikum síðar setti Portúgalinn enska framherjann í frystikistuna. Getty/Martin Rickett

Ruben Amorim, þjálfari Manchester United, ræddi aftur stöðu Marcus Rashford hjá félaginu á blaðamannafundi fyrir Evrópudeildarleik á móti rúmenska félaginu FCSB sem fram fer í kvöld.

Rashford hefur ekki komið við sögu hjá United í ellefu leikjum í röð eða síðan í 2-1 sigri á Viktoria Plzen í Evrópudeildinni 12. desember síðastliðinn.

Amorim henti Rashford út út hópnum fyrir Manchester slaginn á móti City sem United vann. Hann hefur ekki spilað eina sekúndu síðan.

Eftir síðasta leik gagnrýndi Portúgalinn fagmennsku Rashford og sagði að enski framherjinn yrði að leggja sig meira fram á æfingum. Hann fór svo langt að segjast frekar vilja nota 63 ára gamlan markmannsþjálfara sinn en Rashford.

„Sjáðu okkar lið og hvernig leikmenn eru í því. Sjáðu síðan hæfileikaríkan leikmann eins og Rashford,“ sagði Ruben Amorim. ESPN segir frá.

„Okkar lið ætti að vera miklu betra með Rashford innan borðs en þessi Rashford þarf að breytast,“ sagði Amorim.

„Ef hann breytist þá erum við meira en tilbúnir að setja hæfileikaríkan leikmann eins og Rashford í liðið okkar. Á þessari stundu er það á hreinu að mínu mati að við þurfum að setja ákveðinn standard. Við erum að bíða eftir Marcus og hvort að honum langi það virkilega mikið að spila með liðinu,“ sagði Amorim.

Amorim neitar því að það séu einhverjar persónulegar deilur þeirra á milli.

„Þetta er það sem málið snýst um. Þið reynið að gera þetta eitthvað persónulegt en ég hef ekkert á móti Marcus. Allir þurfa bara að fylgja sömu reglum og það er svo einfalt í mínum augum. Svarið mitt verður alltaf það sama,“ sagði Amorim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×