Enski boltinn

Prestur sagði við Gakpo að hann myndi semja við Liverpool

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cody Gakpo í leik með Liverpool. Hann vildi fá að spila á móti sínum gömlu félögum í PSV Eindhoven í kvöld.
Cody Gakpo í leik með Liverpool. Hann vildi fá að spila á móti sínum gömlu félögum í PSV Eindhoven í kvöld. Getty/Andrew Powell

Lykilmaður Liverpool fékk skilaboð frá æðri máttarvöldum löngu áður en dyrnar til Liverpool opnuðust. Í kvöld mætir hann sínu gamla félagi.

Hollendingurinn Cody Gakpo er að eiga mjög gott tímabil með Liverpool en hann skoraði tvö mörk og gaf eina stoðsendingu í sigri á Ipswich í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Eins og margir vita þá er Cody Gakpo mjög trúaður maður og hann hefur sagt frá samskiptum sínum við prest þegar hann var enn leikmaður hollenska félagsins PSV Eindhoven.

Cody Gakpo er nú kominn með fjórtán mörk og fimm stoðsendingum með Liverpool á leiktíðinni. Frá 1. desember hefur hann skorað sjö mörk í tíu deildarleikjum.

Framundan er leikur á móti hans gamla félagi PSV Eindhoven í Meistaradeildinni í kvöld.  Gakpo bað Arne Slot, knattspyrnustjóra Liverpool, um að fá að spila þennan leik en Slot hvílir marga leikmenn í leiknum þar sem að Liverpool er öruggt áfram.

Fyrir leikinn rifjaði Cody Gakpo upp samtal sitt við hollenska prestinn.

„Ég er trúaður maður. Einn dag hitti ég prestinn minn í gömlu kirkjunni minni í Hollandi en með honum var annar prestur sem var vinur hans. Hinn presturinn sagði við mig að guð hefði sagt honum að ég myndi fara til Liverpool. Ég hló bara að þessu og svaraði. Já, gott mál, við sjáum til,“ sagði Cody Gakpo.

„Það var þegar smá áhugi frá Manchester United en svo ákvað United að kaupa Antony sumarið 2022,“ sagði Gakpo.

„Á þeim tímapunkti gat ég farið til Leeds, Southampton eða verið áfram hjá PSV. Ég lagðist á bæn og bað guð um leiðsögn. Ég sagði ef ég skora einu sinni þá fer ég til Southampton, ef ég skora tvisvar þá fer ég til Leeds en ef ég skora þrennu þá verð ég áfram hjá PSV,“ sagði Gakpo.

„Daginn eftir var leikurinn og ég skoraði tvisvar. Ég átti líka þátt í þriðja markinu og til að byrja með var það skráð sjálfsmark. Svo tvö mörk. Allt í lagi þá er það bara Leeds,“ sagði Gakpo.

„Ég var ánægður með ákvörðun mína en svo gáfu þeir mér markið eftir leikinn. Ég skoraði því þrennu og örlögin breyttust. Ég ákvað að vera áfram hjá PSV,“ sagði Gakpo.

Gakpo var kominn með níu mörk og tólf stoðsendingar tímabilinu 2022-23 þegar Liverpool keypti hann á 42 milljónir ounda í janúar. Mánuði fyrri hafði hann skoraði þrjú mörk fyrir hollenska landsliðið á HM í Katar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×