Bíó og sjónvarp

Sjón og Eggers leiða hesta sína saman í nýjum vampíruhryllingi

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
FotoJet - 2025-01-22T223121.256
Vísir/Samsett

Sigurjón Birgir Sigurðsson, betur þekktur sem Sjón, og leikstjórinn Robert Eggers leiða saman hesta sína á nýjan leik og hafa skrifað nýjan vampíruhrylling.

Um jólin kom út nýjasta kvikmynd Eggers, endurgerð af sígilda vampíruhryllingnum Nosferatu, sem notið hefur mikilla vinsælda hér á landi og úti í heimi. Nú stefnir hann að því að gera aðra vampírumynd en í stað þess að leita til þögulla, þýskra expressjónista leitar hann talsvert lengra aftur í tímann. Nefnilega til Englands miðalda.

Myndin ber nafnið Werwulf og gert er ráð fyrir því að hún komi út um jólin 2026. Handritið var skrifað af Sjón og Eggers sjálfum en þeir hafa áður unnið saman að handriti víkingaepíkinni Norðanmanninum sem gerist að miklu leyti á Íslandi. Í þeirri mynd fóru einnig Björk Guðmundsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson með hlutverk völvu og seiðkarls, í þeirri röð.

Fram kemur í umfjöllun Hollywood Reporter að enn sé margt á huldu um þessa mynd en að heimildir hermi að sagan eigi sér stað á Englandi þrettándu aldarinnar. Þá hafi einnig mikið verið lagt upp úr því að talsmáti persóna myndarinnar sé tímabilinu samkvæmur og að leikarar muni jafnvel spreyta sig á fornensku.

Það væri eflaust áhugavert fyrir íslenska aðdáendur Eggers og Sjóns í ljósi þess hve lík hin fornenska tunga var íslensku. Jafnvel komi íslenskir bíógestir til með að skilja eitthvað sperri þeir eyrun.

Þar segir einnig að Eggers hefði í hyggju að kvikmyndin yrði svarthvít en að hann hefði hætt við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.