Handbolti

„Ó­heppni ef þú gerir þetta einu sinni en sí­endur­tekið er þetta bara lé­legt“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elliði Snær Viðarsson fær rauða spjaldið.
Elliði Snær Viðarsson fær rauða spjaldið. vísir/vilhelm

Elliði Snær Viðarsson spilaði aðeins í rúmar tíu mínútur þegar Ísland sigraði Grænhöfðaeyjar, 34-21, í fyrsta leik sínum á HM í handbolta þar sem hann fékk rautt spjald.

Elliði byrjaði á bekknum en kom inn á um miðbik fyrri hálfleiks. Hans naut þó ekki lengi við því á 27. mínútu fékk hann rautt spjald fyrir að fara í andlitið á Edmilson Araújo. Þetta var annað rauða spjald Elliða í síðustu þremur leikjum en hann var einnig rekinn upp í stúku í fyrri vináttulandsleiknum gegn Svíþjóð í síðustu viku.

„Glórulaus ákvörðun,“ sagði Einar Jónsson í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar, um rauða spjaldið sem Elliði fékk. Einar og Ásgeir Örn Hallgrímsson gerðu Grænhöfðaeyjaleikinn upp ásamt Aroni Guðmundssyni í Besta sætinu í gærkvöldi.

„Menn sögðu: Æ, hann er svo grimmur og viljugur og óheppinn. Það er óheppni ef þú gerir þetta einu sinni en þegar þetta er síendurtekið er þetta bara lélegt,“ sagði Einar.

Elliði hefur verið fyrirliði íslenska liðsins í fjarveru Arons Pálmarssonar. Einar segir að hann verði að gera betur með aukna ábyrgð á herðunum.

„Þetta er fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta. Við eigum að ætlast til meira af honum,“ sagði Einar og Ásgeir Örn tók svo við.

„Mér fannst þetta ekki vera rautt spjald á móti Svíunum en ég held að dómararnir hafi alveg neglt þetta þarna. Þetta var svo tilgangslaust. Þetta var glórulaust. Sérstaklega í ljósi þess að hann þarf á leikjum að halda. Ég held að hann hafi bara náð einum leik með Gummersbach áður en mótið byrjaði. Svo koma þessir æfingaleikir og hann fær ekki séns á að vera á parketinu,“ sagði Ásgeir Örn.

Þrátt fyrir að missa Elliða snemma af velli vann Ísland öruggan sigur á Grænhöfðaeyjum, 34-21. Næsti leikur íslenska liðsins er gegn Kúbu annað kvöld.

Hlusta má á Besta sætið í spilaranum hér fyrir ofan og hér fyrir neðan. Þáttinn má finna á öllum helstu hlaðvarpsveitum.


Tengdar fréttir

Lætur ekki glepjast þrátt fyrir þrettán marka sigur: „Hafa ekki efni á þessu“

Ís­lenska karla­lands­liðið hóf veg­ferð sína á HM í hand­bolta með þrettán marka sigri gegn Græn­höfða­eyjum. Rætt var um frammistöðuna í Besta sætinu þar sem að sér­fræðingar þáttarins létu þennan sigur á móti liði „sem ætti erfitt með að halda sér í Olís deildinni“ ekki slá ryki í augun á sér. Margt gott við leik ís­lenska liðsins en mikið rými til bætinga.

Myndasyrpa úr stórsigri strákanna í fyrsta leik á HM

Íslenska karlalandsliðið í handbolta byrjaði heimsmeistaramótið á öruggum þrettán marka sigri í Zagreb í gærkvöldi. Fyrri hálfleikurinn var vissulega betri en sá síðari hjá strákunum en sigurinn var aldrei í hættu eftir 8-2 byrjun. Tólf leikmenn komust á blað og allir fengu að spila.

Skýrsla Vals: Píptest og svefnlyf

Þetta var skrýtinn handboltaleikur. Strákarnir okkar gerðu sitt, drápu allan vonarneista snemma og náðu í 13 marka sigur. Þetta var hins vegar ekki merkilegt eftir hlé.

Töfræðin á móti Grænhöfðaeyjum: Orri nýtti allt sitt í fyrsta HM-leiknum

Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann þrettán marka sigur á Grænhöfðaeyjum, 34-21, í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í handbolta en þrátt fyrir öruggan sigur þá átti íslenska liðið engan stórleik. Liðið kláraði engu að síður verkefnið nokkuð sannfærandi og sigurinn var aldrei í hættu.

„Mjög skemmti­legt og sér­stak­lega á móti Ís­landi“

„Maður er ennþá að ná að jarðtengja sig aðeins. Maður er dálítið hátt uppi núna, eftir fyrsta leik á HM, en þetta er gott fyrir reynsluna,“ sagði Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha, sem afrekaði það að spila á móti Íslandi á HM í handbolta í kvöld.

„Þeir eru ekki með lélega handboltamenn“

„Það var hrikalega skemmtilegt að byrja þetta mót, og á svona sigri,“ sagði hornamaðurinn Orri Freyr Þorkelsson eftir frábæran fyrsta leik sinn á HM í handbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×