Í strandbænum Sharm El Sheikh í Egyptalandi nýtur þú sólar, hlýju og menningar Heimsferðir 13. janúar 2025 13:38 Al Sahaba moskan er staðsett í Sharm El Sheikh og er ein af fallegri og þekktari moskum á í þessum heimshluta. Hún er vinsæll ferðamannastaður sem og staður til bænahalds. Þessa dagana kynnir Heimsferðir með stolti þriðju ferðina í beinu flug til Sharm el Sheikh. Strandbærinn Sharm El Sheikh í Egyptalandi er einn af vinsælustu áfangastöðum Evrópu- og Mið Austurlandabúa en þangað sækja milljónir manna ár hvert til að njóta sólar, hlýju og menningar. Þessa dagana kynnir Heimsferðir með stolti þriðju ferðina í beinu flug til Sharm el Sheikh. „
Er hægt að hugsa sér meira spennandi ævintýri í febrúar, meðan kuldinn og myrkrið ræður ríkjum hér á landi?,“ segir Hafsteinn M. Másson, markaðsstjóri Heimsferða. „Í febrúar er meðalhitinn í Sharm El Sheikh 24-27 gráður yfir daginn. Flogið er í beinu flugi til Egyptalands sem tekur um sjö og hálfa klukkustund. Boðið er upp á gistingu á 4-5 stjörnu hótelum þar sem allt er innifalið. Brottför er 21. febrúar og komið er heim þann 2. mars. Á þessu tímabili detta inn tvær helgar þannig að ferðalangar eru ekki að eyða mörgum sumarleyfisdögum í fríið. Auk þess má geta að margir skólar eru í vetrarfrí á þessum tíma sem gerir þessa ferð að enn meira spennandi valkosti.“ Sharm El Sheikh er staðsettur á Sinai skaganum fyrir neðan samnefndan eyðimerkurfjallgarð. Umhverfið er einstök blanda af eyðimerkursandi, klettum og hinu einstaka Rauða hafi. „Það er alltaf vinsælt meðal ferðamanna að kafa í Rauða hafinu og synda á milli kóralrifa og skoða lífið í sjónum. Sjórinn er ljósblár og tær og því auðvelt að gleyma sér algjörlega við að snorkla eða kafa. Flest hótel bjóða upp á köfunarnámskeið og köfunarferðir og nýta margir sér þann möguleika og kafa t.d. í Rauða hafinu eða við kóralrifin við Tiran og Ras Mohammed“ Strandbærinn sjálfur er nokkuð dreifður og hótelin tilheyra ákveðnum ströndum eða strandsvæðum að sögn Hafsteins. „Gamli bærinn í Naama Bay er nokkuð vinsæll á kvöldin en þar er jafnframt elstu hótelin staðsett. Bærinn er líflegur með fjölda veitinga- og kaffihúsa ásamt mörgum skemmtilegum verslunum.“ Annað vinsælt svæði er Soho Square en sá bæjarhluti er afar líflegur og mikið skreyttur ljósum og gosbrunnum. „Þar má líka finna fjölda verslana, kaffi- og veitingahúsa, skemmtistaði og jafnvel skautahöll. Samgöngur eru góðar milli svæði og afar auðvelt að taka leigubíl frá hótelunum bæði til Naama Bay eða Soho Square.“ Egyptaland er sögufrægt land og státar af einni elstu siðmenningu heims sem svo sannarlega er gaman að kynnast. Það er því alveg nauðsynlegt að kíkja í nokkrar skoðunarferðir segir Hafsteinn og er fjöldi skemmtilegra skoðunarferða í boði frá Sharm El Sheikh. „Ein vinsælasta ferð okkar er dagsferð til Luxor en þar heimsækjum við m.a. Vestur Bakkann, Konungadalinn þar sem nokkur grafhýsi eru skoðuð, Colossi of Memno, höll Hatshepsut drottningar endum daginn í Luxor Temple.“ Önnur vinsæl ferð er í Ras Mohammed þjóðgarðinn sem stendur ýmist yfir í hálfan eða heilan dag. „Einnig er vinsælt að fara safarí ferðir út í eyðimörkina á fjórhjólum, jeppum eða úlföldum. Fyrir þá sem langar að sjá pýramídana er dagsferð þangað einnig í boði. Dagurinn er langur en ég get lofað einstakri upplifun. Bæjarferð um Sharm El Sheikh vekur alltaf lukku sem og ferð í Nabq þjóðgarðinn og dagsferð til Luxor. Á strandsvæðinu er stór og mikill vatnsrennibrautagarður þar sem fólk á öllum aldri finnur eitthvað við sitt hæfi en hægt er að skoða nánari upplýsingar um skoðunarferðirnar á vefnum okkar.“ Öll hótel sem Heimsferðir bjóða upp á í Sharm El Sheikh eru með öllu fæði og drykkjum inniföldum í verði. Um er að ræða morgun- hádegis- og kvöldverð ásamt snarli á milli máltíða og innlenda drykki. „Auk þess bjóða flest hótelin upp á innflutta drykki gegn auka gjaldi. Öll hótelin eru með Wi-Fi tengingu en hraðinn er misjafn eftir hótelum og hvar gestir eru staðsettir.“ Hafsteinn segir ferðamenn afar mikilvæga fyrir Egypta og því sé þjónustustigið afar hátt. „Það er mikið lagt upp úr öryggi og að ferðamönnum líði vel meðan á dvöl stendur. Á svæðinu búa um 100 þúsund manns og 90 prósent þeirra starfa við ferðaþjónustu. Hótelin eru flest öll mjög vel búin og starfsmenn afar hjálplegir við gesti sína. Íslenskir ferðalangar eru því í afar góðum höndum.“ Nánari upplýsingar má finna á vef Heimsferða.
Ferðalög Egyptaland Sólin Mest lesið Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Lífið Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Lífið Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Lífið Fleiri fréttir Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Grillað nachos fyrir partíið og pallinn í góða veðrinu Upplifa oft von í fyrsta sinn á Vík Icewear styrkir Þjóðhátíð Hágæða merkjavara á geggjuðum afslætti út föstudaginn Öldrun í hársverði - Fríða Rut gefur ráð Flottasti garður landsins er á Selfossi Myndaveisla: Bylgjulestin lokaði sumrinu í Vaglaskógi Íslendingar geta verið sóðar Vertu hress um verslunarmannahelgina með After Party! Bylgjulestin heimsækir Vaglaskóg Ísland fyrst Norðurlanda með EMotorad rafmagnshjól Er þetta hinn fullkomni pulled pork borgari? Bylgjulestin mætti á Götubitahátíðina - Ilmandi myndaveisla Strumpaður dagur á forsýningu á Strumpum Bylgjulestin og dásamlegur götubiti í Hljómskálagarðinum Kjóstu flottasta garð ársins 2025! „Búið ykkur undir bragðsprengju í munni“ Myndaveisla frá Kótelettunni - Bylgjulestin 2025 Góð ráð fyrir garðinn í sumar „Töluvert álag á líkama sem nálgast sextugt“ Bylgjulestin mætir á Kótelettuna Girnileg pizzaloka sem þú verður að prófa! Myndaveisla frá Írskum dögum - Bylgjulestin 2025 Flottasti garður landsins - taktu þátt! Komu Balmain Hair Couture í Hagkaup fagnað með glæsilegum viðburði Bylgjulestin mætir á Írska daga á Akranesi Kerlingarfjöll: Ævintýri á hálendi Íslands Sjá meira