Everton endaði furðulegan dag á því að fara áfram í bikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2025 21:47 Beto skoraði fyrra mark Everton á móti Peterborough á Goodison Park í kvöld. AP/Peter Byrne Fulham, Everton og Cardiff City komust öll áfram í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar í fótbolta í kvöld.
Úrvalsdeildarliðið Everton vann 2-0 sigur á C-deildarliði Peterborough á Goodison Park en þetta var furðulegur dagur því Everton rak knattspyrnustjóra sinn, Sean Dyche, þremur tímum fyrir leik. Leighton Baines og Séamus Coleman stýrðu liðinu til sigurs í leiknum í kvöld. Beto skoraði fyrsta mark leiksins á 42. mínútu eftir stoðsendingu frá Harrison Armstrong. Seinna markið kom úr vítaspyrnu á áttundu mínútu í uppbótatímanum. Jarrad Branthwaite fiskaði vítið og Iliman Ndiaye skoraði úr því. Ashley Young kom inn á sem varamaður hjá Everton en fékk þó ekki að spila á móti syni sínum Tyler Young sem sat allan tímann á bekknum hjá Peterborough. Úrvalsdeildarliðið Fulham vann 4-1 sigur á b-deildarliði Watford. Rodrigo Muniz kom Fulham í 1-0 á 26. mínútu en Rocco Vata jafnaði metin sjö mínútum síðar. Raul Jiménez kom inn á sem varamaður í hálfleik og kom Fulham aftur yfir með marki úr víti á 49. mínútu. Joachim Andersen skoraði þriðja markið á 65. mínútu. Timothy Castagne innsiglaði sigurinn með fjórða markinu á 85. mínútu eftir að hafa fengið stoðsendingu frá Martial Godo. Cardiff City vann 1-0 útisigur á Sheffield United í uppgjöri tveggja b-deildarliða. Cian Ashford kom Cardiff yfir á 19. mínútu leiksins og það reyndist eina mark leiksins.
Enski boltinn Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Íslenski boltinn Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira