Mikið áfall fyrir Eyjakonur Sindri Sverrisson skrifar 8. janúar 2025 12:31 Marta Wawrzynkowska verður ekki með ÍBV á næstunni. vísir/Diego Sennilegt þykir að markvörðurinn frábæri Marta Wawrzynkowska hafi þegar spilað sinn síðasta leik fyrir ÍBV á þessari leiktíð, í Olís-deild kvenna í handbolta.
Frá þessu er greint á handbolti.is þar sem Sigurður Bragason, þjálfari ÍBV, staðfestir að Marta sé með rifu í krossbandi í hné. Meiðslin komu í ljós þegar Marta fór í liðþófaaðgerð í byrjun desember og segir Sigurður alveg óvíst hvenær hún geti snúið aftur til keppni. Skoðun í næstu viku gæti skýrt það betur. Marta hefur verið einn albesti markvörður deildarinnar og þrátt fyrir að ÍBV sé meðal neðstu liða þá hefur Marta, samkvæmt tölfræðivef HB Statz, varið 38,5% skota á mark liðsins, eða 13,4 skot í leik. Aðeins Hafdís Renötudóttir hjá meisturum Vals hefur varið fleiri skot að meðaltali í vetur eða 13,6, og skera þær sig nokkuð úr. Bernódía Sif Sigurðardóttir varði mark ÍBV um helgina, í fyrsta leik liðsins eftir hlé frá því um miðjan nóvember í Olís-deildinni. Hún varði 11 skot og var með 31,4% markvörslu, samkvæmt vef HB Statz, en Eyjakonur töpuðu þó á heimavelli, 26-23 gegn ÍR. Eftir tapið um helgina er ÍBV jafnt ÍR og Stjörnunni í 5.-7. sæti deildarinnar en liðin eru með sex stig hvert eftir tíu umferðir, tveimur stigum fyrir ofan Gróttu sem er á botninum. Neðsta liðið fellur niður í Grill 66 deildina og næstneðsta liðið lendir í umspili við lið úr þeirri deild.
Olís-deild kvenna ÍBV Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Sjá meira