Uppskriftir

Kraft­mikill grænn safi fyrir öfluga húð

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Heilsukokkurinn og jógagyðjan Jana leggur mikið upp úr heilbrigðu líferni. Hún vann þennan girnilega græna safa í samvinnu við húðvörumerkið Bioeffect.
Heilsukokkurinn og jógagyðjan Jana leggur mikið upp úr heilbrigðu líferni. Hún vann þennan girnilega græna safa í samvinnu við húðvörumerkið Bioeffect. SAMSETT

Janúar mánuður er vel á veg kominn og eflaust margir að leggja sig alla fram við hollustu og heilbrigði þessar fyrstu vikur ársins. Heilsukokkurinn og jógagyðjan Jana er þekkt fyrir girnilegar og ofurhollar uppskriftir en hún útbjó sérstakan grænan safa í samvinnu við húðvörumerkið Bioeffect sem á að hafa öflug áhrif á húðina.

Á Instagram reikningi Bioeffect segir meðal annars:

„Nærðu húðina innan frá og út með þessum kraftmikla safa frá Jönu. Hann er stútfullur af andoxunarefnum, næringarefnum, vítamínum, steinefnum og heilbrigðri fitu sem líkami þinn og húð munu elska. Fullkomið fyrir þau sem vilja vera geislandi og fá auka raka.“

Hér má finna uppskriftina að græna safanum:

1 bolli af frosnum ananas

2 bollar af vatni eða köldu grænu te-i

1 bolli af spínati eða káli

Nokkur mintulauf

⅓ af heilli gúrku

2 sellerí stiklar

Safi úr hálfri sítrónu

3 þurrkaðar apríkósur

2 brasilíuhnetur

2 teskeiðar af hampfræjum

1 teskeið af kollagen dufti (valfrjálst)






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.