Veður

Norðan­áttin getur náð storm­styrk

Atli Ísleifsson skrifar
Gera má ráð fyrir frosti á bilinu þremur til tíu stig.
Gera má ráð fyrir frosti á bilinu þremur til tíu stig. Vísir/Vilhelm

Útlit er fyrir norðanátt í dag sem verður víða á bilinu tíu til fimmtán metrar á sekúndu. Fjöll geta víða magnað upp norðanáttina og má reikna með að vindstrengirnir geti sums staðar orðið hvassir eða jafnvel náð stormstyrk, einkum á Suðausturlandi og Austfjörðum.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir ennfremur að hvassir vindstrengir geti einnig látið á sér kræla í öðrum landshlutum, til dæmis á Kjalarnesi og á sunnanverðu Snæfellsnesi.

„Á Norður- og Austurlandi má búast við éljum eða snjókomu og eru líkur á að vindur, ofnankoma og skafrenningur geti myndað erfið akstursskilyrði á köflum,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Gera má ráð fyrir frosti á bilinu þremur til tíu stig.

Þá segir að í kvöld og nótt lægi vind og dragi úr ofankomu.

„Á morgun verður breytileg átt á landinu og víðast hvar innan við 10 m/s. Köld smálægð nálgast landið úr vestri sem þýðir að á vestanverðu landinu þykknar upp og búast má við snjókomu með köflum þegar kemur fram á daginn. Austanlands verða lítilsháttar leifar af éljum framan af degi, en léttir síðan til þar. Áfram kalt í veðri.“

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Breytileg átt 3-10 m/s og snjókoma með köflum á vestanverðu landinu. Norðan 5-13 austantil með stöku éljum. Frost 3 til 14 stig, kaldast inn til landsins.

Á miðvikudag: Norðlæg átt 3-8 og víða léttskýjað, en 8-13 og dálítil él með austurströndinni. Frost 5 til 17 stig.

Á fimmtudag: Suðlæg átt og léttskýjað, en skýjað vestantil á landinu með stöku éljum. Frost 2 til 15 stig, minnst vestast á landinu.

Á föstudag: Suðaustanátt með slyddu eða rigningu sunnantil og hita 1 til 6 stig. Þurrt norðanlands og minnkandi frost.

Á laugardag og sunnudag: Suðlæg átt og rigning, talsverð úrkoma á sunnanverðu landinu. Hlýnandi veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×