Innherji

Veru­lega dregur úr stöðutöku fjár­festa með krónunni eftir mikla gengis­styrkingu

Hörður Ægisson skrifar
Gengi krónunnar styrkist verulega fyrr í haust þegar erlendir sjóðir fóru að kaupa hlutabréf Marel og eins að auka við fjárfestingar sínar í íslenskum ríkisskuldabréfum.
Gengi krónunnar styrkist verulega fyrr í haust þegar erlendir sjóðir fóru að kaupa hlutabréf Marel og eins að auka við fjárfestingar sínar í íslenskum ríkisskuldabréfum. Samsett

Framvirk staða fjárfesta og fyrirtækja með krónunni hefur ekki verið minni frá því undir lok faraldursins eftir að hafa dregist verulega saman á allra síðustu mánuðum samhliða skarpri gengisstyrkingu, meðal annars vegna kaupa erlendra sjóða á íslenskum verðbréfum. Lífeyrissjóðirnir fóru á sama tíma að auka á ný við fjárfestingar sínar erlendis en útlit er fyrir að hrein gjaldeyriskaup sjóðanna á yfirstandandi ári verði sambærileg að umfangi og í fyrra.


Tengdar fréttir

Líf­eyris­sjóðir setja stefnuna á auknar fjár­festingar í er­lendum hluta­bréfum

Þrír lífeyrissjóðir, sem eru samanlagt með um þúsund milljarða eignir í stýringu, setja allir stefnuna á að auka talsvert við vægi sitt í erlendum hlutabréfum á nýju ári á meðan minni áhersla verður á hlutabréfin hér heima. Fyrr á árinu færði Lífsverk stýringu á séreignarleiðum upp á tugi milljarða innanhús til sjóðsins samhliða því að setja stóraukna áherslu á fjárfestingar í erlendum hlutabréfum.

Grein­endur stóru bankanna með ó­líka sýn á gengis­þróun krónunnar

Skiptar skoðanir birtast í nýlegum hagspám viðskiptabankanna um horfurnar í gengisþróun krónunnar en á meðan hagfræðingar Landsbankans og Íslandsbanka telja útlit fyrir lítilsháttar styrkingu á allra næstu árum eru greinendur Arion heldur svartsýnni, sé litið til mats þeirra á undirliggjandi efnahagsþáttum og utanríkisverslun, og vænta þess að hún eigi eftir að veikjast. Gengið hefur styrkst nokkuð síðustu vikur, einkum með auknu innflæði vegna kaupa á ríkisbréfum, en heilt hefur krónan haldist afar stöðug á árinu.

Ís­lensk ríkis­bréf ekki „jafn krassandi“ með hækkandi langtíma­vöxtum erlendis

Hækkandi vextir á löng ríkisskuldabréf úti í heimi að undanförnu, einkum í Bandaríkjunum, hefur leitt til þess að langtímavaxtamunur við útlönd hefur lækkað og íslensk ríkisbréf eru því „ekki jafn krassandi“ í augum erlendra fjárfesta og margir gætu haldið, að sögn seðlabankastjóra. Mikil gengisstyrking krónunnar, einkum drifin áfram af fjármagnshreyfingum, er „innan jafnvægis“ en hún hefur haldist á tiltölulega þröngu bili um langt skeið.

Gjald­eyris­kaup líf­eyris­sjóða skreppa saman um fjórðung

Talsvert hefur hægt á kaupum lífeyrissjóðanna á erlendum gjaldeyri á undanförnum mánuðum samhliða meðal annars því að fjármagnsinnflæði í íslensk hlutabréf og ríkisskuldabréf var nánast hverfandi. Eftir að hafa veikst nokkuð í ágústmánuði, einkum þegar fjárfestar fóru að vinda ofan af framvirkum stöðum sínum, hefur gengi krónunnar styrkst undanfarið og er að nálgast að nýju gildið 150 á móti evrunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×