Innlent

Allt um nýja ríkis­stjórn Ís­lands í kvöld­fréttum

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Kvöldfréttir Stöðvar 2 eru í opinni dagskrá.
Kvöldfréttir Stöðvar 2 eru í opinni dagskrá. Vilhelm

Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins var skipuð á fundi ríkisráðs Íslands á Bessastöðum í dag. Kristrún Frostadóttir er nýr forsætisráðherra og mun leiða ríkisstjórn þar sem konur verða í meirihluta. 

Farið verður ítarlega yfir atburðarás dagsins þar sem stjórnarsáttmáli flokkanna þriggja var kynntur, starfstjórn Bjarna Benediktssonar var leyst frá störfum og Halla Tómasdóttir forseti Íslands undirritaði einnig forsetaúrskurð um skiptingu starfa ráðherra í nýrri ríkisstjórn, sem verða ellefu í stað tólf. 

Þá segjum við frá því að minnst fimm eru látnir og rúmlega tvö hundruð særðir eftir að bíl var ekið á miklum hraða inn í þvögu fólks á jólamarkaði í Magdeburg í gærkvöld. Árásarmaðurinn er talinn hafa verið einn að verki.

Þetta og margt fleira í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30

Klippa: Kvöldfréttir 21. desember 2024



Fleiri fréttir

Sjá meira


×