Lífið

Yrsa reykspólar fram úr Geir

Jakob Bjarnar skrifar
Þessi fjögur, þau Arnaldur, Yrsa, Óttar og Bjarni, eru söluhæstu höfundarnir. 
Þessi fjögur, þau Arnaldur, Yrsa, Óttar og Bjarni, eru söluhæstu höfundarnir.  vísir

Vísir birtir annan bóksölulistann á þessari vertíð. Nú eru línur teknar að skýrast þó enn séu æsispennandi tímar framundan í bóksölunni.

Arnaldur Indriðason er áfram í efsta sæti heildarlistans með Ferðalok sín en Yrsa Sigurðardóttir stekkur upp í annað sætið með spennusöguna Ég læt sem ég sofi. Geir H. Haarde sem gerði sig líklegan til að veita Arnaldi keppni í síðustu viku hefur gefið eftir og eru þau glæpasagnakóngur og drottning nú að kljást á toppnum. Glæpasögurnar eru að sækja í sig veðrið á ný en því var spáð að velmektartími þeirra á sölulistum væri senn á enda. En Arnaldur er ekki með glæpasögu að þessu sinni þannig að athyglisvert verður að sjá hvernig fer.

Ekki er að sjá að tilnefningar til hinna Íslensku bókmenntaverðlauna hafi teljandi áhrif á áhuga íslenskra bókakaupenda. Arnaldur er vissulega meðal hinna tilnefndu og situr í efsta sæti á lista, en það hefur hann svo sem alltaf gert, bókmenntaverðlaun eða engin bókmenntaverðlaun.

Hástökkvarar vikunnar

Hástökkvari vikunnar er Hulda eftir Ragnar Jónasson sem fer upp um sjö sæti, úr því tólfta og upp í fimmta sæti. Aðrir hástökkvarar vikunnar eru Bjarni Fritzson með Orra óstöðvandi – Heimsfrægur á Íslandi og Guðrún Eva Mínervudóttir með skáldsöguna Í skugga trjánna.

„Sé litið til skáldverkalistans þá er enn mikil hreyfing á titlum upp og niður listann. Spennusögurnar gera sig meira gildandi en í síðustu viku, af fimm efstu skáldverkunum eru fjórar glæpasögur. Þá koma nú fjögur íslensk skáldverk ný inn á listann,“ segir Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda (Fíbút). 

Bryndís Loftsdóttir er sú sem mest veit um bóksölu á Íslandi og gott að eiga hana að þegar farið er yfir bóksölulistana.

Þar ber fyrst að nefna hástökkvarann, Nönnu Rögnvaldardóttur með glæpasöguna Þegar sannleikurinn sefur sem mér segir svo hugur að einhverjir bóksalar standist ekki freistinguna að raða við hlið Ég læt sem ég sofi eftir Yrsu. Bækurnar Rétt áðan eftir Illuga Jökulsson, Kul eftir Sunnu Dís Másdóttur og Í djúpinu eftir Margréti S. Höskuldsdóttur eru einnig nýjar á listanum auk ljóðabókarinnar, Jarðljós eftir Gerði Kristnýju sem skríður inn á topp 20 lista yfir seld skáldverk.

Brauðtertubókin einn af óvæntari smellum ársins

Óttar Sveinsson heldur sínu og vel það. Eins og ávallt. Útkall í ofsabrimi er ný í fyrsta sæti fræðibókalistans, fast á hæla hennar kemur Geir Haarde með Ævisögu og Stóra brauðtertubókin sem gerir sig líklega til að verða ein af óvæntari smellum ársins.

„Sala barnabóka virðist fara hægar af stað en áður, af tíu mest seldu bókum vikunnar eru til dæmis bara tvær barnabækur. Það getur reyndar líka verið merki þess að salan sé að dreifast meira á fleiri titla. En Orri óstöðvandi – Heimsfrægur og Íslandi eftir Bjarna Frizson er ný í fyrsta sæti barnabókalistans. Bækur Birgittu Haukdal, Lára fer á fótboltamót og Atli eignast gæludýr sitja þar í öðru og þriðja sæti.“

Bryndís bendir á að þó að listinn telji yfir 80 titla þá sé það aðeins lítið brot af útgáfunni í ár. „Við hvetjum lesendur til þess að kynna sér úrvalið og auðvitað að halda í hefðina og gefa bækur í jólagjafir,“ segir Bryndís. En ekki hvað?


Bóksölulistinn 1.-8. desember

  1. Ferðalok - Arnaldur Indriðason
  2. Ég læt sem ég sofi - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Útkall í ofsabrimi - Óttar Sveinsson
  4. Orri óstöðvandi - Heimsfrægur á Íslandi - Bjarni Fritzson, myndh. Þorvaldur Sævar Gunnarsson
  5. Hulda - Ragnar Jónasson
  6. Dauðinn einn var vitni - Stefán Máni
  7. Ævisaga - Geir H. Haarde
  8. Lára fer á fótboltamót - Birgitta Haukdal
  9. Kvöldið sem hún hvarf - Eva Björg Ægisdóttir
  10. Í skugga trjánna - Guðrún Eva Mínervudóttir
  11. Atli eignast gæludýr - Birgitta Haukdal
  12. Sextíu kíló af sunnudögum - Hallgrímur Helgason
  13. Stella segir bless - Gunnar Helgason
  14. Himintungl yfir heimsins ystu brún - Jón Kalman Stefánsson
  15. Tjörnin - Rán Flygenring
  16. Bluey - 5 mínútna sögur - Joe Brumm, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  17. Prumpulíus brelludreki - Kai Lüftner, myndh. Wiebke Rauers
  18. Bakað með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal og Sylvía Haukdal
  19. Þegar Trölli stal jólunum - Dr. Seuss,þýð. Þorsteinn Valdimarsson
  20. Verstu skrímsli í heimi - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson

Skáldverk

  1. Ferðalok - Arnaldur Indriðason
  2. Ég læt sem ég sofi - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Hulda - Ragnar Jónasson
  4. Dauðinn einn var vitni - Stefán Máni
  5. Kvöldið sem hún hvarf - Eva Björg Ægisdóttir
  6. Í skugga trjánna - Guðrún Eva Mínervudóttir
  7. Sextíu kíló af sunnudögum - Hallgrímur Helgason
  8. Himintungl yfir heimsins ystu brún - Jón Kalman Stefánsson
  9. Jólabústaðurinn - Sarah Morgan,þýð. Birgitta Hassell og Marta Magnadóttir
  10. Ég færi þér fjöll - Kristín Marja Baldursdóttir
  11. Þegar sannleikurinn sefur - Nanna Rögnvaldardóttir
  12. Jólabókarleitin - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
  13. Hittu mig í Hellisgerði - Ása Marin
  14. Rétt áðan - Illugi Jökulsson
  15. Kul - Sunna Dís Másdóttir
  16. Speglahúsið - Benný Sif Ísleifsdóttir
  17. Morðin á heimavistinni - Lucinda Riley, þýð. Arnar Matthíasson
  18. Hjartabein - Colleen Hoover, þýð. Sunna Dís Másdóttir
  19. Í djúpinu - Margrét S. Höskuldsdóttir
  20. Jarðljós - Gerður Kristný

Fræðbækur og rit almenns efnis

  1. Útkall í ofsabrimi - Óttar Sveinsson
  2. Ævisaga - Geir H. Haarde
  3. Stóra brauðtertubókin - Ýmsir höfundar
  4. Pabbabrandarar 3 - Þorkell Guðmundsson
  5. Börn í Reykjavík - Guðjón Friðriksson
  6. Ullaræði: Villahullu 2 - Heli Nikula, þýð. Guðrún Hannele Henttinen
  7. Öxin, Agnes og Friðrik - Síðasta aftakan á Íslandi - Magnús Ólafsson
  8. Fangar Breta - Sindri Freysson
  9. Ég átti að heita Bjólfur - Æskuminningar - Jón Ársæll Þórðarson
  10. Til taks - Þyrlusaga Landhelgisgæslu Íslands - Benóný Ásgrímsson, Júlíus Ó. Einarsson og Páll Halldórsson
  11. Í veiði með Árna Bald - Árni Baldursson
  12. Þjóðin og valdið - Fjölmiðlalögin og Icesave - Ólafur Ragnar Grímsson
  13. ADHD í stuttu máli - Edward M.Hallowell, þýð. Nanna Rögnvaldardóttir
  14. Fólk og flakk - Sagnakvöld af baksviði stjórnmálanna - Steingrímur J. Sigfússon
  15. Fótboltaspurningar Illuga Jökulssonar - Illugi Jökulsson
  16. Duna - Saga kvikmyndagerðarkonu - Kristín Svava Tómasdóttir og Guðrún Elsa Bragadóttir
  17. Ég skal hjálpa þér - Saga Auriar - Herdís Magnea Hübner
  18. Frasabókin – ný og endurbætt íslensk snjallyrði - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
  19. Morðleikir - 100 auðveldar til ómögulegar gátur - G.T. Karper, þýð. Ingunn Snædal
  20. Churchill - Stjórnvitringurinn framsýni - James C. Humes, þýð. Magnús Þór Hafsteinsson

Barna- og ungmennabækur

  1. Orri óstöðvandi - Heimsfrægur á Íslandi - Bjarni Fritzson, myndh. Þorvaldur Sævar Gunnarsson
  2. Lára fer á fótboltamót - Birgitta Haukdal
  3. Atli eignast gæludýr - Birgitta Haukdal
  4. Stella segir bless - Gunnar Helgason
  5. Tjörnin - Rán Flygenring
  6. Bluey - 5 mínútna sögur - Joe Brumm, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  7. Prumpulíus brelludreki - Kai Lüftner, myndh. Wiebke Rauers
  8. Bakað með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal og Sylvía Haukdal
  9. Þegar Trölli stal jólunum - Dr. Seuss, þýð. Þorsteinn Valdimarsson
  10. Verstu skrímsli í heimi - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson
  11. Vörubílar og vinnuvélar - Örn Sigurðsson
  12. Risaeðlugengið 6: Leyndarmálið - Lars Mæhle, myndh. Lars Rudebjer
  13. Fíasól í logandi vandræðum - Kristín Helga Gunnarsdóttir, myndir Halldór Baldursson
  14. Kærókeppnin - Embla Bachmann, myndir Blær Guðmundsdóttir
  15. Lína bjargar jólunum - Astrid Lindgren, þýð. Silja Aðalsteinsdóttir
  16. Kúkur, piss og prump - Vísindalæsi 5 - Sævar Helgi Bragason, myndir Elías Rúni
  17. Dagbók Kidda klaufa 18: Ekkert mál - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson
  18. Bluey - ömmur - Joe Brumm, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
  19. Ævintýri Orra og Möggu - Ótrúleg uppátæki - Bjarni Fritzson, myndir Þorvaldur Gunnarsson
  20. Hvolpasveitin: Voff-voff björgunartæki - Keith Chapman, þýð. Andri Karel Ásgeirsson

Uppsafnað frá áramótum

  1. Ferðalok - Arnaldur Indriðason
  2. Ég læt sem ég sofi - Yrsa Sigurðardóttir
  3. Ævisaga - Geir H. Haarde
  4. Lára fer á fótboltamót - Birgitta Haukdal
  5. Útkall í ofsabrimi - Óttar Sveinsson
  6. Orri óstöðvandi - Heimsfrægur á Íslandi - Bjarni Fritzson, myndir Þorvaldur Sævar Gunnarsson
  7. Dauðinn einn var vitni - Stefán Máni
  8. Hildur - Satu Rämö, þýð. Erla Elíasdóttir Völudóttir
  9. Hulda - Ragnar Jónasson
  10. Kvöldið sem hún hvarf - Eva Björg Ægisdóttir
  11. Sextíu kíló af sunnudögum - Hallgrímur Helgason
  12. Atli eignast gæludýr - Birgitta Haukdal
  13. Lykillinn - Kathryn Hughes, þýð. Ingunn Snædal
  14. Fóstur - Claire Keegan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
  15. Í skugga trjánna - Guðrún Eva Mínervudóttir
  16. Sjö fermetrar með lás - Jussi Adler-Olsen, þýð. Jón St. Kristjánsson
  17. Stella segir bless - Gunnar Helgason
  18. Prumpulíus brelludreki - Kai Lüftner, myndir Wiebke Rauers
  19. Fíasól í logandi vandræðum - Kristín Helga Gunnarsdóttir, myndir Halldór Baldursson
  20. Himintungl yfir heimsins ystu brún - Jón Kalman Stefánsson

Tengdar fréttir

Geir og Arnaldur í fang­brögðum á toppnum

Vísir birtir, í samstarfi við Félag íslenskra bókaútgefenda, fyrsta bóksölulista ársins. Hann endurspeglar að þessu sinni sölu íslenskra bóka í nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.