Menning

Snorri skein skært í hátíðarbrókinni

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Innlifunin var ósvikin á jólatónleikum Snorra Ásmundssonar.
Innlifunin var ósvikin á jólatónleikum Snorra Ásmundssonar. Aðsend

Það var stemning og mikil gleði á jólatónleikum Snorra Ásmundssonar í Hannesarholti í síðustu viku þar sem hann flutti frumsamin verk og sömuleiðis spunaverk sem samin voru á augnablikinu. Snorri skartaði glimmerbrók og skein skært.

Snorri, sem er kominn í hátíðarskap, lýsir sjálfum sér gjarnan sem besta píanóleikara í heimi en í fréttatilkynningu segir:

„Tónleikagestir ljómuðu á þessum töfraviðburði og féllust í faðma að tónleikum loknum. Enn einu sinni tókst Snorra að toppa sig á tónleikum og er löngu búinn að sanna að hann sé sá allra besti píanóleikari sem sést hefur fyrir framan píanó.“

Snorri var í stuði í Hannesarholti.Aðsend

Hér má sjá Snorra Ásmundsson spila á píanóið:

Hér má sjá stemninguna hjá Snorra:

Snorri Ásmundsson hefur vakið athygli í listheiminum í áraraðir fyrir litaglöð málverk sín og hans mjög svo einstöku gjörninga. Þá vakti miklar eftirtektir þegar hann lék á píanó í bústað sendiherra Íslands í Austurríki fyrir rúmum tveimur árum síðan. 

Hann var viðmælandi í Vísis þættinum Kúnst árið 2022 þar sem hann sagði meðal annars að líf hans væri meira og minna einn stór gjörningur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.