Fótbolti

Hver snjó­bolti kostaði fimm­tíu þúsund

Sindri Sverrisson skrifar
Snjókoma getur átt það til að setja sinn svip á leiki, eins og til að mynda á Kópavogsvelli fyrir þremur árum, þegar Breiðablik mætti Real Madrid í Meistaradeild kvenna.
Snjókoma getur átt það til að setja sinn svip á leiki, eins og til að mynda á Kópavogsvelli fyrir þremur árum, þegar Breiðablik mætti Real Madrid í Meistaradeild kvenna. VÍSIR/VILHELM

Stuðningsmenn dönsku knattspyrnuliðanna AGF og Nordsjælland köstuðu snjóboltum inn á völlinn í leik liðanna í nóvember, og það hefur nú leitt til þess að hvort félag þarf að greiða 5.000 danskar krónur í sekt.

Upphæðin nemur hátt í 100.000 íslenskum krónum fyrir hvort félag, og má segja að hver snjóbolti hafi kostað 50.000 krónur.

Það flugu nefnilega tveir snjóboltar inn á völlinn frá stuðningsmönnum Norsjælland, og tveir frá stuðningsmönnum AGF, samkvæmt skýrslu eftirlitsmanns á leiknum, eða samtals fjórir snjóboltar.

Í skýrslunni er jafnframt tekið fram að snjóboltarnir hafi þó ekki haft áhrif á úrslit leiksins, sem Nordsjælland vann 1-0 á heimavelli sínum í Farum með marki í uppbótartíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×