Enski boltinn

„Aldrei verið nein vanda­mál hjá okkur Pep“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kevin De Bruyne og Pep Guardiola þvertaka fyrir að brestir séu komnir í samstarf þeirra.
Kevin De Bruyne og Pep Guardiola þvertaka fyrir að brestir séu komnir í samstarf þeirra. getty/Michael Regan

Kevin De Bruyne gaf lítið fyrir umræðuna um meint ósætti þeirra Peps Guardiola, knattspyrnustjóra Manchester City, eftir sigurinn á Nottingham Forest

Eftir að hafa leikið sjö leiki í röð án þess að vinna sigraði City Forest í ensku úrvalsdeildinni í gær, 3-0. De Bruyne lagði fyrsta mark City upp og skoraði annað markið sjálfur.

Talsvert hefur verið rætt og ritað um meint ósætti De Bruynes og Guardiolas en þeir Gary Neville og Jamie Carragher telja að eitthvað hafi komið upp á í sambandi City-mannanna og vísuðu til þess hversu lítið Belginn spilaði í tapinu fyrir Liverpool, 2-0.

Guardiola blés á allar slíkar vangaveltur á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Forest.

„Fólk segir að það sé eitthvað vandamál á milli mín og Kevin. Haldið þið að mér finnist gaman að spila án Kevins? Að ég vilji ekki nota Kevin? Manninn sem hefur mesta hæfileika allra á fremsta þriðjungnum. Að ég vilji það ekki? Að ég eigi í persónulegu vandamáli gagnvart honum eftir níu ár saman?“ spurði Guardiola.

„Hann hefur fært mér mesta árangur í sögu þessa félags. Ég vil ólmur fá hann aftur upp á sitt besta. En hann var frá keppni vegna meiðsla í fimm mánuði og svo í tvo mánuði. Hann er 33 ára gamall. Hann þarf tíma til að ná fram sínu besta.“

De Bruyne segir af og frá að þeir Guardiola séu ósáttir við hvorn annan.

„Ég veit að margt hefur verið sagt. Það hafa aldrei verið nein vandamál hjá okkur Pep. Hann veit að ég hef átt í vandræðum,“ sagði De Bruyne sem var í byrjunarliði City í gær, í fyrsta sinn síðan 18. september, en hann hefur verið mikið frá vegna meiðsla.

„Þetta er sársaukafullt og óþægilegt. Ég vil komast aftur á völlinn. Mér leið vel í byrjun tímabilsins og legg hart að mér að koma aftur. Kannski verður þetta upp og niður úr þessu en vonandi get ég komið aftur án mikils sársauka og þá verður þetta í lagi.“

City er í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 26 stig. Næsti leikur liðsins er gegn Crystal Palace á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×