Sport

Slot mætti með Salah brandara á blaða­manna­fundinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arne Slot með Mohamed Salah eftir 4-0 sigur Liverpool á Bayer 04 Leverkusen í Meistaradeildinni fyrr í vetur.
Arne Slot með Mohamed Salah eftir 4-0 sigur Liverpool á Bayer 04 Leverkusen í Meistaradeildinni fyrr í vetur. Getty/Crystal Pix

Arna Slot var auðvitað spurður út í framtíð Mohamed Salah á blaðamannafundi sínum í gær.

Liverpool tekur á móti Real Madrid í Meistaradeildinni í fótbolta í kvöld. Liverpool er á toppi Meistaradeildarinnar en Real Madrid er handhafi titilsins.

Liverpool hefur byrjað tímabilið frábærlega en umræðan eftir síðasta sigur liðsins í ensku úrvalsdeildinni hefur að mestu snúist um framtíð Mohamed Salah sem er að renna út á samningi í sumar.

Salah skoraði tvívegis í seinni hálfleik á móti Southampton um helgina og sá til þess öðrum fremur að liðið náði átta stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.

Salah kveikti í umræðunni með að lýsa yfir vonbrigðum sínum að hafa ekki fengið samningstilboð frá Liverpool. Hann talaði þá um að hann væri meira úti en inni eins og hann orðaði það.

Sá egypski taldi þannig meiri líkur á því að hann færi frá Liverpool en að hann skrifaði undir nýjan samning. Salah talar sjaldan við fjölmiðlamenn eftir leiki og var augljóslega með þessu að setja pressu á eigendur Liverpool.

Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, mætti undirbúinn að blaðamannafund fyrir leikinn því hann vissi auðvitað að hann fengi þar spurningar um framtíð Salah.

Slot ákvað að mæta með húmorinn eins og oft áður. Hann kom nefnilega vopnaður Salah brandara á fundinn. Hann sagðist ekkert geta tjáð sig um samningarmálin enda kæmi hann ekkert að þessu. Hann sagði síðan bara geta sagt eitt.

„Þegar ég horfi á liðsuppstillinguna mína þá er Mo meira inni en úti,“ sagði Arne Slot og hló.

Liverpool hefur unnið fjórtán af sextán fyrstu leikjum sínum undir stjórn Slot í ensku úrvalsdeildinni og og í Meistaradeildinni. Salah hefur spilað alla sextán leikina og er með ellefu mörk og tíu stoðsendingar í þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×