Létt göngu­ferð í skóginum hjá Arsenal

Siggeir Ævarsson skrifar
Hinn 17 ára Ethan Nwaneri skoraði sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni í dag
Hinn 17 ára Ethan Nwaneri skoraði sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni í dag Vísir/Getty

Arsenal átti ekki í neinum vandræðum með spútniklið Nottingham Forest þegar liðin mættust á Emirates í dag en leiknum lauk með öruggum 3-0 sigri heimamanna.

Arsenal hafði mikla yfirburði í leiknum og gestirnir komust varla í sókn löngum stundum. Mörk heimamanna komu þó ekki beinlínis á færibandi en það var Bukayo Saka sem braut ísinn á 15. mínútu. Thomas Partey tvöfaldaði forskotið svo á 52. mínútu eftir undirbúning frá Saka, sem var besti leikmaður Arsenal í dag.

Það var svo varamannatvíeykið Ethan Nwaneri og Raheem Sterling sem gerðu endanlega út um leikinn á 86. mínútu þegar Sterling lagði upp mark fyrir hinn 17 ára Nwaneri. Fyrsta mark hans í ensku úrvalsdeildinni og jafnframt fyrsta stoðsending Sterling fyrir Arsenal, en hann er á láni hjá liðinu frá Chelsea.

Gestirnir náðu reyndar að koma boltanum í netið nánast strax í næstu sókn en markið réttilega dæmt af vegna rangstöðu.

3-0 lokatölurnar á Emirates í dag og gengi Arsenal allt að koma til en þetta var fyrsti sigur liðsins í deildinni síðan 5. október.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira