Innherji

Vaxtalækkunin í takt við væntingar en þrá­lát verð­bólga kallar á­fram á „var­kárni“

Hörður Ægisson skrifar
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, en í yfirlýsingu nefndarinnar í morgun segir að áhrifa þétts peningalegs taumhalds muni áfram gæta í efnahagsumsvifum á næstunni.
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, en í yfirlýsingu nefndarinnar í morgun segir að áhrifa þétts peningalegs taumhalds muni áfram gæta í efnahagsumsvifum á næstunni. Vísir/Vilhelm

Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að lækka vexti um 50 punkta er í samræmi við spár flestra greinenda og markaðsaðila en í yfirlýsingu nefndarinnar, sem er fremur hlutlaus, er undirstrikað að þrálát verðbólga og verðbólguvæntingar yfir markmiði kalli áfram á „varkárni.“ Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans er útlit fyrir engan hagvöxt í ár og þá mun verðbólgan ganga hraðar niður á næsta ári en áður var talið.

Eftir vaxtalækkunina í morgun, sem kemur tíu dögum fyrir Alþingiskosningar, standa meginvextir Seðlabankans í 8,5 prósentum – þeir lækkuðu áður um 25 punkta í byrjun október – en í yfirlýsingu nefndarinnar er vísað til þess að verðbólgan hafi haldið áfram að hjaðna og mældist 5,1 prósent í október. „Hjöðnun verðbólgu er á breiðum grunni og undirliggjandi verðbólga hefur einnig minnkað. Þá hafa verðbólguvæntingar almennt lækkað og raunvextir því hækkað.

Umfang vaxtalækkunarinnar er í takt við væntingar en mikill meirihluti þátttakenda í könnun Innherja, sem var birt síðasta mánudag, gerði ráð fyrir 50 punkta lækkun. Þar var vísað til þess að horfur væru á því að raunvaxtastigið færi ört hækkandi á komandi mánuðum, mun meira en peningastefnunefndin hefur sagt nauðsynlegt til að ná niður verðbólgu í markmið, og því væri nefndin undir þrýstingi um að ráðast í að lágmarki fimmtíu punkta vaxtalækkun á þessu stig.

Næsti fundur nefndarinnar er ekki fyrr en snemma í febrúarmánuði.

Í yfirlýsingunni tekur peningastefnunefndin fram að áhrifa þétts peningalegs taumhalds muni áfram gæta í efnahagsumsvifum og hægt hefur á vexti innlendrar eftirspurnar. Þá heldur atvinnuleysi enn að þokast upp og horfur eru á að það dragi úr spennu í þjóðarbúinu þótt það gerist hægar en áður var talið.

Fram kemur í nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans, sem birtist samhliða útgáfu Peningamála, að það verði enginn hagvöxtur á yfirstandandi ári en fyrri spá frá því í ágústmánuði gerði ráð fyrir 0,5 prósenta vexti. Þá hafa verðbólguhorfur út næsta ár batnað sömuleiðis en reiknað er með að verðbólgan verði farin undir þrjú prósent á fyrri hluta ársins 2026 og komin í markmið um mitt það ár.

Tóninn í framsýnni leiðsögn peningastefnunefndar sem birtist í yfirlýsingunni er fremur hlutlaus en hún undirstrikar, líkt og áður, að þrálát verðbólga og verðbólguvæntingar yfir markmiði kalli enn á varkárni. Áfram þurfi að viðhalda hæfilegu aðhaldsstigi til þess að koma verðbólgu í markmið innan ásættanlegs tíma.

Úr Peningamálum: verðbólguhorfur fyrir næsta ár hafa batnað frá því sem áður var spáð.

Þá segir nefndin að mótun peningastefnunnar næstu misseri muni sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.

Fram kemur í Peningamálum bankans að raunvextir hans séu núna áætlaðir 4,4 prósent miðað við meðaltal raunvaxta sem eru reiknaðir út frá mismunandi mælikvörðum á verðbólgu og verðbólguvæntingar til eins árs og hafa hækkað um 1,5 prósentur frá áramótum.

„Þrátt fyrir lækkun meginvaxta í október eru raunvextir bankans 0,2 prósentum hærri nú en við útgáfu Peningamála í ágúst enda hefur verðbólga hjaðnað og skammtímaverðbólguvæntingar lækkað á flesta mælikvarða. Þetta er áþekk þróun og sjá má í öðrum iðnríkjum,“ segir bankinn.


Tengdar fréttir

Vís­bendingar um að mælda verðbólgan sé að „megninu til gamalt vanda­mál“

Undirliggjandi verðbólguþrýstingur heldur áfram að lækka og nýjasta verðbólgumælingin, sem sýndi hana fara niður í 5,1 prósent, er „heilt yfir“ nokkuð góð og ætti að þýða að peningastefnunefnd getur haldið áfram með vaxtalækkunarferlið þegar hún kemur saman í nóvember, að mati hagfræðinga Arion banka. Ef litið er á verðbólguhraðann undanfarna þrjá mánuði er hún á ársgrundvelli komin í markmið Seðlabankans sem er vísbending um að mæld verðbólga núna sé að stórum hluta „gamalt vandamál.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×