Körfubolti

Tryggvi öflugur í tapi Bil­bao

Smári Jökull Jónsson skrifar
Tryggvi Snær í leik með Bilbao á síðustu leiktíð
Tryggvi Snær í leik með Bilbao á síðustu leiktíð Vísir/Getty

Landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason var í stuði með liði Bilbao sem mætti Joventut Badalona á heimavelli í spænsku ACB-deildinni í körfuknattleik.

Bæði lið voru um miðja deild fyrir leikinn í dag og búist við jöfnum leik. Sú varð þó ekki alveg raunin. Gestirnir frá Badalona tóku frumkvæðið strax í upphafi og þó forystan hafi ekki verið mikil í fyrri hálfleiknum voru þeir ávallt skrefinu á undan.

Staðan í hálfleik var 45-38 gestunum í vil en heimamenn náðu að minnka muninn í eitt stig um miðjan þriðja leikhluta. Lið Badalona lauk þriðja leikhlutanum hins vegar á 14-1 kafla og sáu til þess að fjórði leikhlutinn var ekki mikið spennandi.

Gestirnir unnu að lokum sextán stiga sigur, staðan 95-79. Tryggvi Snær Hlinason átti fínan leik fyrir lið Bilbao. Hann skoraði 14 stig á 25 mínútum og klikkaði aðeins á tveimur skotum. Hann tók þar að auki átta fráköst.

Martin meiddur og Elvar mátti þola tap

Elvar Már Friðriksson og félagar hans í gríska liðinu Maroussi mættu liði Lavrio á heimavelli í dag. Leikurinn var jafn og spennandi, gestirnir leiddu 41-33 í hálfleik en heimamenn sneru leiknum sér í vil í þriðja leikhlutanum og staðan fyrir lokafjórðunginn var 59-53 Maroussi í vil.

Þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir jöfnuðu gestirnir metin í 68-68 og skoruðu þá sjö stig í röð og náðu 75-68 forystu. Heimamenn náðu að minnka muninn á ný og fengu þrjú vítaskot þegar 24 sekúndur voru eftir og minnkuðu þá muninn í 80-77.

Þá hófst gamli góði leikurinn að brjóta á andstæðingi og senda þá á vítalínuna. Gestirnir komust í 82-77 og og heimamenn náðu ekki að gera leikinn spennandi. Lokatölur 84-79 fyrir liði Lavrio.

Elvar Már lék í tæplega þrjátíu mínútur fyrir lið Maroussi og skoraði 16 stig auk þess að gefa 5 stoðsendingar og taka 3 fráköst.

Þá tapaði Alba Berlin, lið Martins Hermannssonar, 96-93 gegn liði Vechta. Martin var ekki í leikmannahópi Alba vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×