Pick Szeged hafði betur í toppslag Íslendingaliðanna Smári Jökull Jónsson skrifar 16. nóvember 2024 18:47 Janus Daði fagnaði sigri í Íslendingaslag í dag. Vísir/Getty Íslendingaliðin Pick Szeged og Veszprem mættust í sannkölluðum toppslag í ungversku deildinni í handknattleik í dag. Janus Daði Smárason hafði þar betur gegn tveimur félögum sínum úr landsliðinu.
Fyrir leikinn í dag voru bæði Pick Szeged og Veszprem með 16 stig í tveimur efstu sætum ungversku deildarinnar en lið Pick Szeged hafði leikið einum leik meira en Veszprem sem hafði unnið alla sína átta leiki. Aron Pálmarsson og Bjarki Már Elísson voru í leikmannahópi Veszprem en Aron gekk til liðs við félagið á dögunum í annað sinn á ferlinum. Þá var Janus Daði Smárason á sínum stað í liði heimamanna í Pick Szeged. Leikur þessara erkifjenda var jafn og spennandi eins og við var að búast. Heimamenn komust í 8-5 eftir tuttugu mínútna leik en Veszprem skoraði þá fjögur mörk í röð og náði forystunni. Staðan í hálfleik var 12-12 og leikurinn í járnum. Síðari hálfleikur þróaðist á svipaðan hátt. Pick Szeged var skrefinu á undan og náði þriggja marka forskoti í stöðunni 23-20 þegar tíu mínútur voru eftir. Gestirnir náðu að minnka muninn og þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir gat Aron Pálmarsson jafnað metin í 25-25 en skot hans fór forgörðum. Pick Szeged skoraði í staðinn síðustu þrjú mörk leiksins og tryggði sér 28-24 sigur. Heimamenn fara því á topp deildarinnar með 18 stig en Veszprem er tveimur stigum á eftir og á leik til góða. Janus Daði Smárason skoraði tvö mörk úr þremur skotum fyrir Pick Szeged í dag og Aron Pálmarsson skoraði sömuleiðis tvö mörk fyrir lið Veszprem. Bjarki Már Elísson kom ekki við sögu hjá gestunum.
Ungverski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira