Rætt verður við formann Lyfjafræðingafélagsins, sem kallar eftir að nefúði sem er mótefni við of stórum skammti verði settur í lausasölu, og eins forstjóra Lyfjastofnunar, sem bregst við í beinni.
Nýsamþykkt læknaverkföll hefðu stórfelld áhrif á starfsemi heilsugæslunnar á höfuðsborgarsvæðinu að sögn forstjóra. Öryggismönnun verður bæði þar og á Landspítala.
Fjármála- og efnahagsráðherra vonar að umdeilt frumvarp um kílómetragjald verði samþykkt fyrir þinglok. Hann segir mikilvægt að fjárlög verði samþykkt með sem minnstum breytingum.
Repúblikanar í Bandaríkjunum hafa tryggt sér meirihluta í báðum þingdeildum. Við kryfjum stöðuna í kvöldfréttunum. Og við verðum í beinni útsendingu frá Eldborg þar sem poppkóngurinn Páll Óskar stígur á svið ásamt Sinfóníuhljómsveitinni í kvöld.
Þetta og margt fleira í kvöldfréttum á Stöð 2 og Bylgjunni klukkan 18:30.