Tíska og hönnun

Galvaskar Gucci gellur á galakvöldi

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Stórstjarnan Kim Kardashian skein skært á galakvöldi LACMA um helgina. Kim klæddist Gucci kjól og skartaði hálsmeni sem var eitt sinn í eigu Díönu prinsessu.
Stórstjarnan Kim Kardashian skein skært á galakvöldi LACMA um helgina. Kim klæddist Gucci kjól og skartaði hálsmeni sem var eitt sinn í eigu Díönu prinsessu. Gilbert Flores/Variety via Getty Images

Það vantaði ekki upp á glæsileikann á galakvöldi safnsins LACMA í Los Angeles borg um helgina þegar stórstjörnur komu saman í sínu fínasta pússi. Margir hverjir klæddust nýjustu tískustraumunum frá tískuhúsinu Gucci, þar á meðal Kim Kardashian, sem skartaði líka gömlum fjólubláum krossi frá Díönu prinsessu við mjög fleginn hvítan kjól. 

Galakvöldið er sömuleiðis fjáröflun fyrir safnið. Á laugardagskvöld söfnuðust 6,4 milljónir dollara eða 875 milljónir íslenskra króna sem er nýtt met. 

Poppstjörnurnar Charli XCX og Troy Sivan tróðu upp klædd í splunkunýtt Gucci og Vogue drottningin Anna Wintour, stórleikarinn Javier Bardem og fleiri góðir gestir stigu trylltan dans. 

Ofurfyrirsæturnar Cara Delevingne og Kaia Gerber klæddust sömuleiðis glæsilegum Gucci kjólum sem og leikkonan Laura Dern. 

Heiðursverðlaunahafar kvöldsins rokkuðu sömuleiðis Gucci föt en það voru listakonan og skúlptúristinn Simone Leigh og kvikmyndaleikstjórinn Baz Luhrmann. 

Simone hefur meðal annars sett upp sýningu á Feneyjartvíæringnum og er með stóra sýningu á LACMA um þessar mundir. 

„Þetta augnablik minnir mig á það þegar dóttir mín kom eitt sinn heim úr skólanum og sagði mér að vinum hennar þætti ég töff,“ sagði Leigh meðal annars kímin í þakkarræðu sinni. 

Baz nýtti tækifærið og þakkaði eiginkonu sinni og listrænum félaga Catherine Martin sem hann kynntist á lestarstöð 25 ára gamall. Hann sagði að fyrst og fremst snerist listin um að ná til fólks og snerta það á einstakan máta.

Hér má sjá nokkrar myndir og Instagram færslur frá stjörnunum á galakvöldinu í Los Angeles. Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. 

Baz Luhrmann og Simone Leigh voru heiðursverðlaunahafar kvöldsins og klæddust bæði glæsilegum Gucci flíkum.Matt Winkelmeyer/Getty Images fyrir LACMA





Fleiri fréttir

Sjá meira


×