Innherji

Verð­bólgu­hjöðnun í kortunum sem gæti opnað á stóra vaxta­lækkun í nóvember

Hörður Ægisson skrifar
Verðbólgumælingin um miðja þessa viku er sú síðasta áður en Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og aðrir nefndarmenn í peningastefnunefnd birta vaxtaákvörðun sína 20. nóvember næstkomandi - þá síðustu á þessu ári. 
Verðbólgumælingin um miðja þessa viku er sú síðasta áður en Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og aðrir nefndarmenn í peningastefnunefnd birta vaxtaákvörðun sína 20. nóvember næstkomandi - þá síðustu á þessu ári.  Vísir/Vilhelm

Nokkuð skiptar skoðanir eru á meðal greinenda og hagfræðinga hversu hratt verðbólgan mun halda áfram að ganga niður þegar mælingin fyrir október verður kunngjörð síðar í vikunni, sú síðasta áður en peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næsta mánuði. Gangi bjartsýnustu spár eftir um að árstaktur verðbólgunnar muni lækka niður í fimm prósent ætti það að auka líkur á að Seðlabankinn telji forsendur til að íhuga að minnsta kosti 50 punkta vaxtalækkun.


Tengdar fréttir

Betra að byrja en bíða þangað til hag­kerfið er „sannar­lega komið í kreppu“

Peningastefnunefnd mat áhættuna af því að byrja vaxtalækkunarferlið minni heldur en að bíða enn lengur og þurfa þá mögulega ráðast í hraðar lækkanir samhliða því að hagkerfið væri að sigla inn í „kreppu,“ að sögn seðlabankastjóra, sem hefur væntingar um að verðbólgan sé að fara koma skarpt niður og aðhaldsstigið gæti því aukist enn frekar. Falli hlutirnir með nefndinni fram að næsta fundi seint í nóvember megi búast við frekari lækkunum en nefndin var ekki sérstaklega með augun á vaxtalækkunum stóru erlendu seðlabankanna að undanförnu við ákvörðun sína þótt ljóst sé að Ísland er mjög tengt þróuninni í Bandaríkjunum.

Stjórnar­slit og frestun á banka­sölu muni hafa lítil á­hrif á skulda­bréfa­markaðinn

Stjórnarslitin munu hafa lítil áhrif á þróunina á skuldabréfamarkaði á næstu misserum, að sögn sjóðstjóra, sem bendir á að slík niðurstaða sé búin að vera í kortunum í talsverðan tíma og hafi því ekki átt að koma fjárfestum á óvart. Verðbólguálagið lækkaði nokkuð á markaði í dag sem kann að vera vísbending um að skuldabréfafjárfestar vænti þess að áformað frumvarp um olíu- og kílómetragjald muni verða að veruleika.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×