Innlent

Raf­magns­laust á Húsa­vík fram á kvöld

Árni Sæberg skrifar
Rafmagnslaust er víða á Húsavík.
Rafmagnslaust er víða á Húsavík. Vísir/Vilhelm

Rafmagnslaust er í stórum hluta Húsavíkur og gert er ráð fyrir að rafmagnsleysið vari til 22:30 í kvöld.

Í tilkynningu á vef Rarik segir að rafmagnsbilun sé í gangi í hluta af innanbæjarkerfi á Húsavík. Unnið sé að viðgerð og vonast sé að rafmagn komi á klukkan 22:30.

Rafmagnslaust er í syðri hluta bæjarins.Rarik



Fleiri fréttir

Sjá meira


×