Innlent

Græningjar leita að þjóðþekktum ein­stak­lingi

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Kikka Sigurðardóttir einn stofnenda Græningja. Flokkurinn leitar af fólki til að bjóða fram á lista í þremur kjördæmum.
Kikka Sigurðardóttir einn stofnenda Græningja. Flokkurinn leitar af fólki til að bjóða fram á lista í þremur kjördæmum. Vísir/Sigurjón

Flokkur Græningja var stofnaður í gær. Einn stofnenda leitar nú logandi ljósi af þjóðþekktum einstaklingi sem brennur fyrir umhverfismál. Flokkurinn vonist til að ná inn að minnsta kosti einum til tveimur þingmönnum.

Stofnfundur Græningja var haldinn í gær. Flokkurinn hyggst bjóða fram í Reykjavíkurkjördæmum suður og norður og Norðausturkjördæmi og er búist við að listarnir verði kynntir í vikunni. 

Kikka Sigurðardóttir rithöfundur er einn stofnenda Græningja. Kikka hefur skrifað bækur, útvarpsleikrit, sjónvarpshandrit og kvikmyndahandrit. Þekktasta verkið hennar er eflaust Ávaxtakarfan. 

Verður að vera þekkt fólk á listum

Kikka segir að nú sé verið að finna rétta fólkið fyrir flokkinn. Þá sé verið að reyna að fá listabókstafinn G. 

„Eins skrítið og það hljómar þá verður að vera þekkt fólk á listum. Þú sérð það á því hverjir eru að fara á lista hjá öðrum flokkum. Þetta er allt fólk sem hefur verið í sjónvarpi síðustu ár. Við hugsuðum fyrst að við þyrftum fyrst og fremst fólk með brennandi áhuga á umhverfismálum. Svo var einhver sem benti mér á að við þyrftum að finna þekkt andlit,“ segir Kikka sem ætlar sjálf að bjóða sig fram en ekki í oddvitasæti.

Flokkurinn leggur megináherslu á umhverfismál

Kikka segir að flokkurinn hafi fyrst og fremst verið stofnaður í kringum umhverfismál. 

„Við leggjum áherslu á íslenska náttúru. Við viljum stofnun Miðhálendisþjóðgarðs með öllum þjóðlendum. Við ætlum að einblína á loftlagsvánna og auðlindirnar okkar sem við gefum hægri vinstri hverjum sem vill hirða þær. Ég reikna með að við verðum risastór með tímanum eins og aðrir græningjaflokkar í Evrópu,“ segir Kikka. 

Vinstri græn ekki staðið sig nógu vel

Aðspurð hvort flokkurinn sé ekki að fara í beina samkeppni við Vinstri græn svarar Kikka:

„Nei vonandi förum við þó í samvinnu með þeim. Þau hafa hins vegar ekki staðið sig alveg nógu vel. Náttúra Íslands og loftlagsváin hafa ekki verið þeirra aðalmál inn á þingi. Þau náðu ekki einu sinni að standa við sína eigin loftslagsáætlun þegar þau voru í ríkisstjórn.“

Kikka er vongóð fyrir komandi kosningar. 

„Ég læt mig dreyma um að koma inn einum eða tveimur þingmönnum,“ segir Kikka. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×